Hörð barátta á öðru móti Páskaeggjasyrpunnar



IMG_8046 (Large)

Verðlaunahafar í eldri flokki; F.v. Benedikt Þórisson, Stephan Briem, Elísabet Xi Sveinbjörnsdóttir og Alexander Már Bjarnþórsson

Páskaeggjasyrpa Nóa Síríus og Taflfélags Reykjavíkur hélt áfram í dag þegar annað mótið af þremur fór fram.  Tæplega 40 vaskir skákkrakkar mættu til leiks og var venju samkvæmt teflt í aldursflokkum 2000-2006 sem og 2007 og yngri.  Þess má geta að yngsti keppandinn, Jósef Omarsson, er fæddur árið 2011 en hann hefur staðið sig afar vel í syrpunni.  Sannarlega efnilegur piltur þar á ferð!

IMG_8043 (Large)

Verðlaunahafar í yngri flokki; F.v. Batel Mirion, Gunnar Erik Guðmundsson og Adam Omarsson.

Baráttan í báðum flokkum var jöfn og spennandi þó svo að báðir sigurvegarar hafi komið í mark með fullt hús vinninga.  Í eldri flokki sigraði Stephan Briem eftir að hafa lagt alla sína andstæðinga en næstur honum með 5 vinninga kom Alexander Már Bjarnþórsson og þá var Benedikt Þórisson þriðji með 4,5 vinning.  Stúlknaverðlaun hlaut Elísabet Xi Sveinbjörnsdóttir en hún nældi sér í 3 vinninga.

IMG_8026 (Large)

Það er rétt að fylgjast með hinum unga og efnilega Jósef Omarssyni.

Í yngri flokki var niðurstaðan nánast sú sama og í fyrsta mótinu.  Aftur lagði Gunnar Erik Guðmundsson alla sína andstæðinga og ljóst er að það er erfitt að eiga við kauða.  Adam Omarsson var annar með 5 vinninga og þá kom Batel Mirion þriðja í mark með 4 vinninga, jafnmarga vinninga og Bjartur Þórisson en ofar eftir stigaútreikning. Batel hlýtur einnig stúlknaverðlaun yngri flokks.

IMG_8031 (Large)

Alexander Már Bjarnþórsson í þungum þönkum.

Við þökkum fyrir samveruna í dag og hlökkum til að hitta ykkur aftur næstkomandi sunnudag þegar þriðja og síðasta mót syrpunnar fer fram.  Heildarúrslit má sjá hér.