HM ungmenna: Sigur hjá Vigni í 1. umferð



Vignir Vatnar Stefánsson vann öruggan sigur í fyrstu umferð HM ungmenna sem fram fer í Durban, S-Afríku, dagana 20.-29. september.  Andstæðingur Vignis var stigalaus skákmaður frá Namibíu og var Vignir ekki í vandræðum með að klára viðureignina sem tók innan við tvær klukkustundir og aðeins 23 leiki.  Vignir tefldi hvasst með hvítu, saumaði að andstæðingnum á drottningarvæng og eftir nokkra slæma afleiki svarts í snúinni stöðu gafst hann upp enda liðstap ekki umflúið.

Vignir er númer 30 í stigaröð ríflega eitthundrað keppenda í flokki 12 ára og yngri en alls eru keppendur á mótinu tæplega eittþúsund talsins af 87 þjóðernum.  Teflt er í tólf aldursflokkum drengja og stúlkna.  Á morgun sunnudag fara fram tvær umferðir og hefst sú fyrri kl. 8 í fyrramálið að íslenskum tíma en sú seinni kl. 15.  Tefldar eru 11 umferðir og er tekinn frídagur 24. september.

Hér má sjá sigurskák Vignis úr fyrstu umferðinni.

  • Chess-Results
  • Heimasíða mótsins
  • Beinar útsendingar(mótssíða)
  • Beinar útsendingar (Chessdom)