Héðinn náði stórmeistaraáfanga



Héðinn Steingrímsson náði stórmeistaraáfanga á öðru mótinu í röð á Kaupþingsmótinu, sem lauk í Differdange í Lúxemborg í gær. Hann sigraði stigahæsta keppenda mótsins, Malakhatko, glæsilega í síðustu umferð.

Héðinn hlaut sex og hálfan vinning í níu skákum og lenti í skiptu þriðja sæti. Hannes Hlífar Stefánsson sigraði á mótinu, ásamt Humpy Koneru, með sjö vinninga.

Nánar verður sagt frá áfanga Héðins og sigri Hannesar mjög bráðlega.

Til hamingju strákar!