Guðni og Guðmundur í Búdapest



Guðni Stefán Pétursson (2107) vann enn einn sigurinn í níundu umferð FM-flokks First Saturdays-mótsins, sem fram fór í dag í Búdapest í Ungverjalandi.  Guðni hefur hlotið 7 vinninga í átta skákum og hefur 1,5 vinnings forskot á næsta mann, þegar tveimur umferðum er ólokið. Guðmundur Kjartansson (2306) gerði jafntefli við franska alþjóðlega meistarann Clovis Vernay (2381) í SM-flokki og hefur lokið þátttöku. 

Sjá nánar á Skák