Guðmundur hefur leik á EM einstaklinga



Guðmundur_Kjartansson2

Aljóðlegi meistarinn og nýkrýndur Íslandsmeistari Guðmundur Kjartansson (2437) er á meðal þátttakenda í sterku og fjölmennu Evrópumóti einstaklinga sem fram fer í Minsk, Hvíta-Rússlandi, dagana 30. maí – 10. júní. Alls eru keppendur tæplega 400 talsins og er Guðmundur númer 220 í stigaröðinni. Hvorki fleiri né færri en 171 stórmeistari tekur þátt í mótinu, þar af níu sem hafa meira en 2700 Elo-stig og á áttunda tug hefur meira en 2600 Elo-stig. Stigahæstur keppenda er tékklenski stórmeistarinn David Navara (2739). Aðeins 10% keppenda hefur minna en 2000 Elo-stig.

Tefldar verða 11 umferðir sem allar hefjast kl. 12.30 að íslenskum tíma að undanskilinni lokaumferðinni sem hefst kl. 8 að morgni. Ein umferð fer fram á dag en frídagur er 4. júní. Efstu 22 sætin í mótinu gefa þátttökurétt á Heimsbikarmótinu síðar á árinu þar sem efstu tvö sætin veita þátttökurétt í átta manna áskorendamóti hvar keppt er um réttinn til að skora á núverandi heimsmeistara, Magnus Carlsen, í næstkomandi heimsmeistaraeinvígi sem fer fram í nóvember 2018.

Í fyrstu umferð fékk Guðmundur ærið verkefni er hann stýrði hvítu mönnunum gegn úkraínska stórmeistaranum Alexander Moiseenko (2677) og varð hann að lokum að játa sig sigraðan. Önnur umferð fer fram á morgun miðvikudag og hefst kl. 12.30 að íslenskum tíma. Þá stýrir Gummi svörtu mönnunum gegn heimamanninum Valiantsin Yezhel (2156).