Guðmundur enn efstur



Guðmundur Kjartansson (2314) vann Jóhann H. Ragnarsson (2068) í sjöundu umferð Haustmóts TR sem fram fór í kvöld.  Guðmundur hefur 6 vinninga og hefur vinnings forskot á Davíð Kjartansson (2291), sem gerði jafntefli við Þór Valtýsson (2041).   Sverrir Örn Björnsson (2158) er í þriðja sæti með 4,5 vinning eftir jafntefli við Tómas Björnsson (2162).  Guðmundur hefur tryggt sér titilinn, skákmeistari TR annað árið í röð. Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram sunnudaginn 16. október og hefst kl. 14:00. 

A-flokkur:

Úrslit 7. umferðar:

 

1 Olafsson Thorvardur  0 – 1 Bergsson Stefan 
2 Valtysson Thor  ½ – ½ Kjartansson David 
3 Jonsson Bjorn  1 – 0 Baldursson Haraldur 
4 Ragnarsson Johann  0 – 1 Kjartansson Gudmundur 
5 Bjornsson Tomas  ½ – ½ Bjornsson Sverrir Orn 

 

 
Staðan:

 

Rk.   Name RtgI Club/City Pts.  Rp rtg+/-
1 IM Kjartansson Gudmundur  2314 TR 6 2418 7,2
2 FM Kjartansson David  2291 Víkingar 5 2300 2,4
3   Bjornsson Sverrir Orn  2158 Haukar 4,5 2215 8,7
4   Ragnarsson Johann  2068 TG 4 2197 18,3
5 FM Bjornsson Tomas  2162 Goðinn 3,5 2130 -4,7
6   Bergsson Stefan  2135 SA 3,5 2152 2,3
7   Olafsson Thorvardur  2174 Haukar 2,5 2061 -16,5
8   Jonsson Bjorn  2045 TR 2,5 2025 -4,1
9   Valtysson Thor  2041 SA 2 1992 -7,9
10   Baldursson Haraldur  2010 Víkingar 1,5 1935 -9,3

 

 

Aðrir flokkar: 

Dagur Ragnarsson (1761) er efstur í b-flokki með 5,5 vinning, Mikael Jóhann Karlsson (1855) er annar með 4,5 vinning og Ingi Tandri Traustason (1823) og Kristján Örn Elíasson (1906) eru í 3.-4. sæti með 4 vinninga. 

Oliver Aron Jóhannesson (1645) er eftur í c-flokki með 6 vinninga, Birkir Karl Sigurðsson (1597) er annar með 5 vinninga og Friðgeir Hólm (1667) er þriðji með 4 vinninga. 

Vignir Vatnar Stefánsson (1444) er langefstur í d-flokki (opnum flokki) með fullt hús.  Sóley Lind Pálsdóttir (1345), Hilmir Freyr Heimisson (1322) og Jóhann Arnar Finnsson (1199) eru í 2.-4. sæti með 5 vinninga.