Gagnaveitumótið heldur áfram í kvöld eftir hlé



Áttunda og næstsíðasta umferð Gagnaveitumótsins – Haustmóts Taflfélags Reykjavíkur fer fram í kvöld og hefst kl. 19.30.  Einar Hjalti Jensson er efstur í A-flokki og mætir Sverri Erni Björnssyni.  Í B-flokki leiðir Jón Trausti Harðarson en hann fæst við Sverri Sigurðsson í kvöld.  Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir og Sigurjón Haraldsson eru efst og jöfn í C-flokki og í opnum flokki er Haukur Halldórsson á toppnum.

  • Bein útsending
  • Úrslit, staða og pörun
  • Skákir: 1   2   3   4   5   6   7
  • Myndir