Fréttir

Allar helstu fréttir frá starfi TR:

Þórir Ben heiðraður af T.R.

Þórir Benediktsson hefur verið útnefndur heiðursmeðlimur í Taflfélagi Reykjavíkur.  Stjórn félagsins mun afhenda honum formlegt skjal þess efnis ásamt heiðursorðu félagsins við hátíðlega athöfn á fimmtudagsmóti í kvöld. Þórir er borinn og barnfæddur í Reykjavík og hefur alla sína tíð verið liðsmaður Taflfélags Reykjavíkur.  Hann hefur verið afskaplega iðinn við kolann á mótum félagsins í gegnum árin og hefur varla ...

Lesa meira »

MR Íslandsmeistari framhaldsskólasveita

Sveit Menntaskólans í Reykjavík varð Íslandsmeistari framhaldsskólasveita í skák 2010. M.R. hlýtur því rétt á að tefla fyrir Íslands hönd á Norðurlandamóti framhaldsskólasveita sem fram fer í Danmörku í september. Sveit M.R. varði því Íslandsmeistaratitil sinn frá því í fyrra, og er sveitin Norðurlandameistari frá 2009.  Íslandsmót framhaldsskólasveita fór fram föstudaginn 26. mars í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12. Sex ...

Lesa meira »

Laugardagsæfing verður 3. apríl

Hvergi er slakað á á barnaæfingum T.R. og næsta laugardag 3. apríl (laugardag fyrir páskadag) verður skákæfing eins og venjulega.  Sem fyrr hefst æfingin kl. 14 en húsið opnar kl. 13.45. Pistlar æfinganna

Lesa meira »

Nýr stigalisti – Örn Leó hækkar mest

Nýr stigalisti íslenskra skákstiga kom út á dögunum.  Góður árangur TR-inga kemur þar berlega í ljós því hinn ungi, Örn Leó Jóhannsson, hækkar mest allra á milli lista, eða um heil 145 Elo-stig.  Örn er nú kominn með 1775 stig og á að auki inni töluverða hækkun frá Opna Reykjavíkur mótinu og mun fara vel yfir 1800 stigin þegar sú ...

Lesa meira »

Stefán Bergsson sigraði á fjölmennu fimmtudagsmóti

Stefán Bergsson sigraði á fjölmennasta fimmtudagsmóti vetrarins til þessa. Hann var eini taplausi keppandinn en gerði jafntefli við Finn Kr. Finnsson. Í kaffihléinu eftir fjórðu umferð var Elsa María Kristínardóttir ein með fullt hús. Rétt er að taka fram að hvergi verður slakað á og verður teflt í Faxafeni n.k. fimmtudag, á skírdag. Úrslit urðu annars sem hér segir:   ...

Lesa meira »

Átta með fullt hús á öðlingamótinu

Önnur umferð Skákmóts öðlinga fór fram síðastliðið miðvikudagskvöld.  Úrslit voru að mestu eftir bókinni, þ.e. sá stigahærri sigraði þann stigalægri.  Átta skákmenn hafa fullt hús vinninga en tveir koma næstir með 1,5 vinning.  Tvær skákir eru enn ótefldar. Nú verður gert hlé á mótinu og fer þriðja umferð fram miðvikudagskvöldið 14. apríl kl. 19.30. Chess-Results Skákir (Ólafur S. Ásgrímsson sló ...

Lesa meira »

Magnús Pálmi sigraði á jöfnu fimmtudagsmóti

Fjórir urðu efstir að vinningum á jafnasta fimmtudagsmóti vetrarins til þessa en Magnús Pálmi Örnólfsson sigraði á stigum. Magnús var eini taplausi keppandinn en gerði jafntefli við Sverri Þorgeirsson, Gunnar Finnsson og Jón Úlfljótsson. Í kaffihléinu eftir fjórðu umferð var Gunnar Finnsson einn með fullt hús. Úrslit urðu annars sem hér segir: 1-4   Magnús P. Örnólfsson           5.5       Sverrir Sigurðsson             ...

Lesa meira »

Öðlingamótið hafið – aldrei meiri þátttaka

Skákmót öðlinga hófst í gærkvöld þegar 40 keppendur settust niður við skákborðin tilbúnir að kreista líftóruna úr þeim sem andspænis sat, skáklega séð að sjálfsögðu. Þátttaka í mótinu hefur aldrei verið meiri og var fyrra met slegið hressilega en það var 24 keppendur.  Mótið er að auki líkast til það sterkasta frá upphafi með níu keppendum yfir 2000 elo-stigum en ...

Lesa meira »

Þrefaldur sigur TR-inga á skákmóti Árnamessu – Birkir vann

Á dögunum fór fram í annað sinn mót í Stykkishólmi, sem kennt er við Árna Helgason, en hann var heiðursborgari þar í bæ og er mótið haldið á afmælisdegi hans.  Keppendur eru grunnskólabörn hvaðanæva að og var mótið í ár mjög vel skipað 90 börnum. 12 krakkar úr Taflfélagi Reykjavíkur voru á meðal keppenda og stóðu þau sig hreint útsagt ...

Lesa meira »

Skákmót öðlinga hefst í kvöld – þátttökumet

Þátttökumet verður slegið í Öðlingamótinu sem hefst í kvöld kl. 19.30.  Jafnframt stefnir í að mótið verði eitt það sterkasta frá upphafi. Enn er nægur tími til að ganga frá skráningu en nú þegar hefur 31 keppandi skráð sig til leiks: Þorsteinn Þorsteinsson  2278 Gunnar Gunnarsson         2231 Bragi Halldórsson 2230 Björn Þorsteinsson          2226 Bjarni Hjartarson            2162 Jóhann H.Ragnarsson 2124 Magnús Gunnarsson ...

Lesa meira »

Skákmót öðlinga 2010 – 25 skráðir til leiks

Það stefnir í metþátttöku á Skákmóti öðlinga sem hefst annaðkvöld kl. 19.30.  25 keppendur hafa þegar skráð sig til leiks, þeirra á meðal núverandi öðlingameistari, Björn Þorsteinsson. Keppendalistinn: Þorsteinn Þorsteinsson  2278 Gunnar Gunnarsson         2231 Björn Þorsteinsson          2226 Bjarni Hjartarson            2162 Jóhann H.Ragnarsson 2124 Magnús Gunnarsson 2124 Jóhann Ö.Sigurjónsson 2055 Eiríkur K.Björnsson      2025 Sigurður H.Jónsson         1886 Páll Sigurðsson 1885 Kári Sólmundarson ...

Lesa meira »

Skákmót öðlinga 2010 – 14 skráðir til leiks

Skákmót öðlinga 40.ára og eldri hefst miðvikudaginn 17. mars kl. 19.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12.  Tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina + 30 sekúndna viðbótartími á hvern leik. Núverandi öðlingameistari er Björn Þorsteinsson.   Dagskrá: 1. umferð miðvikudag 17. mars kl. 19.30 2. umferð miðvikudag 24. mars kl. 19.30 3. ...

Lesa meira »

Stefán Bergsson sigraði á fimmtudagsmóti

Stefán Bergsson hafði sigur á fjölmennu fimmtudagsmóti í gærkvöldi. Stefán tapaði þó í þriðju umferð og lengst af leiddi Unnar Þór Bachmann mótið. Stefán vann hins vegar síðustu fjórar skákirnar og komst hálfum vinningi yfir Jon Olav Fivelstad með sigri í innbyrðis viðureign þeirra í síðustu umferð. Úrslit urðu annars sem hér segir:   1   Stefán Bergsson                 6  2-3  Jon Olav ...

Lesa meira »

Taflfélag Reykjavíkur í þriðja sæti á Íslandsmóti skákfélaga

A-sveit Taflfélags Reykjavíkur hafnaði í þriðja sæti á Íslandsmóti skákfélaga sem lauk nú um helgina þegar seinni hluti mótsins fór fram dagana 5. og 6. mars.  B-sveitin varð fimmta í annari deild, c-sveitin fjórða í þriðju deild og í fjórðu deild hafnaði d-sveitin í tíunda sæti og e- og f-sveitirnar í 28. og 29. sæti. Ítarlega umfjöllun um árangur T.R.-sveitanna ...

Lesa meira »

Öruggur sigur Þóris Ben á fimmtudagsmóti

Á annan tug skákmanna hitaði upp fyrir Íslandsmót skákfélaga á síðastliðnu fimmtudagsmóti. Þórir Benediktsson vann í fyrstu sex umferðunum og var búinn að tryggja sér sigurinn áður en hann gerði jafntefli í síðustu umferð. Jóhann Bernhard laut í gras fyrir Þóri í fyrstu umferð en tapaði ekki upp frá því og lenti ásamt Stefáni Péturssyni í öðru til þriðja sæti. ...

Lesa meira »

Seinni hluti Íslandsmóts skákfélaga fer fram um helgina

Um helgina fer fram seinni hluti Íslandsmóts skákfélaga.  Að venju er teflt í Rimaskóla og er dagskráin sem hér segir: 5. umferð – föstudag 5. mars kl. 20 6. umferð laugardag 6. mars kl. 11 7. umferð laugardag 6. mars kl. 17 Sveitir T.R. stóðu sig vel í fyrri hlutanum og eiga b- og c- sveitirnar nokkuð góða möguleika að ...

Lesa meira »

Reykjavíkurmótinu lokið – góður árangur TR-inga

Alþjóðlega MP Reykjavíkurskákmótinu lauk í dag þegar níunda og síðasta umferðin var tefld við glæsilegar aðstæður í Ráðhúsi Reykjavíkur.  Fjórir skákmenn enduðu efstir og jafnir með 7 vinninga, þ.á.m. Hannes Hlífar Stefánsson (2574) sem sigrar því í þriðja sinn í röð á mótinu og í fimmta skiptið alls.  Glæsilegur árangur hjá Hannesi sem nýverið gekk úr röðum Taflfélags Reykjavíkur.  Ásamt ...

Lesa meira »

Reykjavíkurmótið í fullum gangi – formaðurinn á flugi

Alþjóðlega MP Reykjavíkurskákmótið er nú hálfnað en tefldar hafa verið fimm umferðir af níu. Formaður Taflfélags Reykjavíkur, Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir (1809), fór mikinn í gær þegar tefldar voru tvær umferðir og hefur hún nú unnið þrjár skákir í röð og er með 3 vinninga.  Í fyrri skák gærdagsins, sem hófst árla morguns klukkan níu, sigraði hún eiginmann sinn, Jóhann H. ...

Lesa meira »