Fréttir

Allar helstu fréttir frá starfi TR:

Öðlingamótinu lýkur í kvöld – Einar enn einn efstur

odl15_r6__2_

Skákmóti öðlinga lýkur í kvöld þegar sjöunda og síðasta umferðin fer fram í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni. Mótið hefur verið sérlega skemmtilegt og hefur Einar Valdimarsson (1945) vakið athygli fyrir frammistöðu sína en hann er í kjörstöðu fyrir kvöldið með fullt hús vinninga, vinningi meira en Þorvarður Fannar Ólafsson (2222). Næstir með 4 vinninga eru Halldór Pálsson (2030), Ögmundur Kristinsson (2030), ...

Lesa meira »

Hannes efstur fyrir lokaumferð Wow air vormótsins

wow_air_2015_r5-3

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson en einn efstur fyrir lokaumferðina í Wow air vormóti Taflfélags Reykavíkur.  Mikið var um frestanir í sjöttu umferðinni enda eru margir keppenda að þreyta próf um þessar mundir. Hannes sem sigraði Ingvar Þór Jóhannesson örugglega í frestaðri skák á miðvikudagskvöldið er með fimm vinninga eftir sex skákir, hálfum vinning á undan Davíð Kjartanssyni sem gerði jafntefli ...

Lesa meira »

Mykhaylo sigurvegari lokamóts Bikarsyrpunnar

bikar15_r5 (4)

Í dag fóru fram tvær síðustu umferðirnar í fjórða og síðasta móti Bikarsyrpu TR þetta tímabilið og var loftið sannarlega lævi blandið í Skákhöll félagsins að Faxafeni.  Upp úr klukkan tíu í morgun tóku keppendur að tínast á skákstað, enn á ný tilbúnir að murka líftóruna úr andstæðingum sínum, alltsvo á hinum mögnuðu 64-reita borðum. Fyrir fjórðu umferð leiddi Nikulás ...

Lesa meira »

Öðlingamótið: Einar vann eina enn – Einn á toppnum

odl15__r5 (9)

Einar Valdimarsson (1945) fer mikinn á Skákmóti öðlinga og er nú einn efstur með fullt hús vinninga eftir sigur á Guðlaugu Þorsteinsdóttur (1943) í fimmtu umferð.  Einar hefur vinningsforskot á þá félaga, Þorvarð F. Ólafsson (2222) og Halldór Pálsson (2030), sem höfðu betur gegn Haraldi Baldurssyni (1984) og Eiríki K. Björnssyni (1959). Athyglisvert er að skákirnar á fyrstu fjórum borðunum ...

Lesa meira »

Hannes og Davíð efstir á Wow air vormóti TR

wow_air_2015_r5-3

Hannes Hlífar Stefánsson og Davíð Kjartansson leiða A flokk Wow air mótsins með fjóra vinninga eftir fimm umferðir.  Hannes gerði jafntefli við Braga Þorfinnsson meðan Davíð lagði Oliver Aron Jóhannesson í frestaðri skák sem tefld var í gærkvöldi. Einar Hjalti Jensson bar sigurorð af Þorvarði Fannar Ólafssyni, Dagur Ragnarsson sigraði Jóhann Ingvason og Hrafn Loftsson stýrði svörtu mönnunum til sigurs ...

Lesa meira »

Björn Ívar Karlsson Íslandsmeistari í Fischer Random 2015!

fr15 (1)

Síðastliðið föstudagskvöld fór fram Íslandsmótið í Fischer Random á skemmtikvöldi Taflfélags Reykjavíkur. Margir sterkir skákmenn voru mættir til leiks og þeirra á meðal ríkjandi meistari frá síðasta ári, alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson. Hann sigraði þá með fádæma yfirburðum og fékk 11.5 vinninga úr 12 skákum. Fáir áttu von á því að það met yrði slegið í ár. Björn Ívar Karlsson ...

Lesa meira »

Fjórða mótið í Bikarsyrpu T.R. hefst föstudaginn 1. maí

kravch_aron

Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur er nýjung í mótahaldi á Íslandi. Syrpan samanstendur af nokkrum kappskákmótum og er ætluð börnum á grunnskólaaldri (fædd 1999 og síðar) sem ekki hafa náð 1600 skákstigum. Þar með gefst þeim tækifæri til að næla sér í alþjóðleg skákstig á skákmótum sem sérhönnuð eru fyrir þau. Fjórða mótið í syrpunni hefst föstudaginn 1. maí og stendur til ...

Lesa meira »

Allt á hvolfi í Öðlingamótinu

odl15__ (3)

Ef einhver var farinn að sakna óvæntra úrslita þá getur viðkomandi kvatt þann söknuð strax í upphafi nýs sumars því að fjórða umferð Skákmóts öðlinga sparkaði „hefðbundnum“ úrslitum út um gluggann í Faxafeninu.  Á fyrsta borði gerði Einar Valdimarsson (1945) sér lítið fyrir og lagði stigahæsta keppanda mótsins, Þorvarð F. Ólafsson (2222), með svörtu mönnunum.  Með sigrinum smellti Einar sér ...

Lesa meira »

Fjörlega teflt í 4. umferð Wow air mótsins!

wow15_r4 (6)

Í gærkvöld fór fram fjórða umferð í Wow air vormóti Taflfélags Reykjavíkur. Afar hart var barist á öllum borðum í A flokki.  Sannkölluð háspenna var á fyrsta borði þar sem Sigurður Daði Sigfússon og Hannes Hlífar Stefánsson sættust á endanum á skiptan hlut. Þar varðist Sigurður Daði afar vel í flókinni stöðu og miklu tímahraki.  Var hann ítrekað kominn niður á ...

Lesa meira »

Fátt óvænt í 2. umferð Wow-air mótsins

wow_2015_r2-1

Önnur umferð Wow air vormóts TR fór fram síðastliðið mánudagskvöld. Úrslit í A flokki voru að mestu eftir bókinni góðu. Stórmeistarinn Hannes Hlífar sigraði Björgvin Víglundsson örugglega meðan Davíð Kjartansson sigraði Dag Ragnarsson í uppgjöri “FM hnakkanna”. Það var þriðja tapskák Dags í röð, en hann hafði áður tapað óvænt tveimur skákum í áskorendaflokk Íslandsmótsins. Á þriðja borði gerðu síðan ...

Lesa meira »

Fátt óvænt í 1. umferð Skákmóts öðlinga

Tæplega 30 keppendur taka að þessu sinni þátt í Skákmóti öðlinga sem hófst síðastliðinn miðvikudag í Skákhöll Taflfélags Reykjavíkur.  Segja má að úrslit fyrstu umferðar hafi verið eins og við var búist en þó gerðu Haraldur Baldursson (2000) og Kristinn J. Sigurþórsson (1749) jafntefli.  Á fyrsta borði sigraði stigahæsti keppandi mótsins og Öðlingameistari 2012 og 2013, Þorvarður Fannar Ólafsson (2245), ...

Lesa meira »

Mikil skemmtun á lokamóti Páskaeggjasyrpunnar!

Lokamótið í Páskaeggjasyrpu Nóa Síríus og Taflfélags Reykjavíkur fór fram síðastliðinn sunnudag. Fyrstu tvö mótin í syrpunni heppnuðust afar vel og voru mikil skemmtun, og lokamótið varð engin undantekning. Í eldri flokki mættu 33 keppendur til leiks, allt frá krökkum sem tiltölulega nýlega hafa byrjað að yðka skák af kappi upp í okkar sterkustu og efnilegustu unglinga. Stigahæstir og sigurstranglegastir ...

Lesa meira »

Skákir WOW air mótsins

Skákir fyrstu umferðar WOW air mótsins eru aðgengilegar hér.  Önnur umferð fer fram næstkomandi mánudagskvöld og hefst kl. 19.30. Úrslit, staða og pörun Upplýsingar og dagskrá Pistill 1. umferðar Myndir

Lesa meira »

Lokamót Páskaeggjusyrpunnar fer fram á sunnudag

Nú styttist í eina af skemmtilegustu mótasyrpum ársins! Páskaeggjasyrpa Nóa Síríus og Taflfélags Reykjavíkur sló rækilega í gegn í fyrra þegar vel á annað hundrað krakkar tóku þátt í þremur mótum syrpunnar. Í ár endurtökum við leikinn og með þessu framtaki vill T.R. í samstarfi við Nóa Síríus þakka þeim gríðarlega fjölda sem sótt hefur barna- og unglingaæfingar félagsins í ...

Lesa meira »

Wow air vormót TR hafið!

Wow air vormót Taflfélags Reykjavíkur hófst í gærkvöldi í skákhöllinni Faxafeni.  Margir sterkir meistarar taka þátt í A flokki mótsins þ.á.m. stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson, alþjóðlegi meistarinn Bragi Þorfinnsson og Fide meistararnir Dagur Ragnarsson, Einar Hjalti Jensson, Sigurður Daði Sigfússon, Ingvar Þór Jóhannesson og Davíð Kjartansson.  Í B flokki mótsins má finna suma af okkar efnilegustu börnum og unglingum sem ...

Lesa meira »

Stefán og Bárður sigra á öðru móti Páskaeggjasyrpunnar

Páskaeggjasyrpa Nóa Síríus og Taflfélags Reykjavíkur hélt áfram síðastliðinn sunnudag er annað mótið af þremur var haldið. Sem fyrr öttu ungir skákmenn kappi í tveimur flokkum og tefldu sex umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma. Yngri flokkur samanstóð af börnum fædd árið 2006 eða síðar, en í eldri flokki tefldu þeir sem eru fæddir 1999-2005.   Í yngri flokki fylgdi Stefán Orri Davíðsson ...

Lesa meira »

Skákmót öðlinga hefst 25. mars

Skákmót öðlinga 40 ára og eldri hefst miðvikudaginn 25. mars kl. 19.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina + 30 sekúndna viðbótartími á hvern leik.Skákmót öðlinga verður nú haldið í 24. sinn. Núverandi Skákmeistari öðlinga er alþjóðlegi meistarinn Sævar Bjarnason. Dagskrá: 1. umferð miðvikudag 25. mars kl. ...

Lesa meira »

Boðssætum á Wow air mótið hefur verið úthlutað.

Búið er að úthluta boðssætum fyrir A og B flokk Wow air mótsins sem hefst í kvöld.  Að þessu sinni var ákveðið að gefa fjórum sem ekki höfðu tilskilin stig til að keppa í A flokki sæti. Allir eru þessir skákmenn vel að sínu sæti komnir og hafa sýnt góða takta við skákborðið.  Ungu strákarnar, Jón Trausti og Örn Leó ...

Lesa meira »

Wow air vormót TR hefst 23. mars

Hið glæsilega Wow air Vormót Taflfélags Reykjavíkur hefst í skákhöll félagsins að Faxafeni 12 mánudaginn 23. mars  Frábærar viðtökur er mótið var haldið í fyrsta sinn í fyrra tryggja að það verður nú árlegur viðburður í fjöbreyttri mótaflóru félagsins.   Tefldar verða sjö umferðir eftir svissneska kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á fyrstu 40 leikina en eftir það bætast við 15 mínútur.  30 ...

Lesa meira »

Páskaeggjasyrpan hafin!

Páskaeggjasyrpa Nóa Síríus og Taflfélags Reykjavíkur hófst á sunnudag en þá fór fram fyrsta mótið af þremur í syrpunni.  Þessi mótaröð hóf göngu sína í fyrra og fékk strax frábærar viðtökur.  Líkt og í fyrra er keppt er í tveimur flokkum sex umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma.  Í yngri flokk etja kappi krakkar sem fæddir eru 2006 eða síðar en ...

Lesa meira »