Fréttir

Allar helstu fréttir frá starfi TR:

Hraðskákmót Reykjavíkur fer fram í dag

Hraðskákmót Reykjavíkur fer fram í dag, sunnudag, kl. 14.00 í Skákhöll Reykjavíkur. Allir velkomnir. Að loknu móti verður verðlaunaafhending fyrir mótið og Skeljungsmótið – Skákþing Rvk 2008. Verðlaunahafar eru beðnir um að mæta.

Lesa meira »

Davíð skákmeistari Reykjavíkur 2008

Davíð Kjartansson sigraði Henrik Danielsen í 9. umferð Skeljungsmótsins. Þeir tveir urðu jafnir og efstir með 7 vinninga í 9 skákum. En þar eð Henrik býr í Hafnarfirði og er félagi í Haukum telst hann ekki löggildur til meistaratignar. Davíð Kjartansson er því Skákmeistari Reykjavíkur 2008. Úrslit í 9. umferð má sjá hér. Lokastaðan er eftirfarandi: Final Ranking after 9 ...

Lesa meira »

Grand Prix móti frestað

Ákveðið hefur verið að fresta Grand Prix mótinu áfram, þar eð keppendur á Skeljungsmótinu eru kjarni þess hóps, sem mætt hefur á mótið í vetur. Margir þeirra hafa lýst yfir vilja til að fresta mótinu enn, þar eð annað kvöld, föstudagskvöld, sé lokaumferð Skeljungsmótins og menn vilji frá tíma til að hvílast og/eða undirbúa sig fyrir lokahrinuna. Því hefur verið ákveðið ...

Lesa meira »

Henrik efstur á Skeljungsmótinu

  Henrik Danielsen er efstur á Skákþingi Reykjavíkur – Skeljungsmótinu, þegar ein umferð er eftir, með 7 vinninga af 8. Hann sigraði í dag Ingvar Þór Jóhannesson. Á 2. borði gerðu Guðmundur Kjartansson og SIgurbjörn J. Björnsson, núverandi Reykjavíkurmeistari, jafntefli, en á 3. borði vann hinn grjótharði Gaflari Sverrir Örn Björnsson óvæntan sigur á Garðbæingnum Sigurði Daða Sigfússyni. Það er ...

Lesa meira »

Hart barist í 7. umferð Skeljungsmótsins

  Það var hart barist í 7. umferð Skeljungsmótsins, en hún fór fram í dag, sunnudag. Á efstu borðunum sigraði Ingvar Þór Jóhannesson (2338) Guðmund Kjartansson (2307), Henrik Danielsen (2506) vann Sigurð Daða Sigfússon (2313) og ríkjandi Skákmeistari Reykjavíkur, Sigurbjörn J. Björnsson (2286) vann Halldór Grétar Einarsson (2279). Af öðrum úrslitum má nefna, að Sverrir Örn Björnsson (2116) vann Kristján ...

Lesa meira »

Guðmundur og Daði efstir á Skeljungsmótinu

FIDE-meistararnir Sigurður Daði Sigfússon (2313) og Guðmundur Kjartansson (2307) gerðu jafntefli í fimmtu umferð Skeljungsmótsins – Skákþings Reykjavíkur og eru efstir með 4,5 vinning.  Í 3.-7. sæti, með 4 vinninga, eru Henrik Danielsen (2506), Hjörvar Steinn Grétarsson (2247), Kristján Eðvarðsson (2261), Hrafn Loftsson (2248) og Ingvar Þór Jóhannesson (2338).  Engin frestuð skák var í kvöld og því liggur pörun sjöttu ...

Lesa meira »

Grand Prix mótinu frestað um viku

Grand Prix mótið, sem auglýst var nk fimmtudag, hefur verið frestað um viku. Ástæðan er, að ólíklegt þótti að margir myndu mæta vegna landsleiks Íslands og Svíþjóðar í handbolta. Þó ekki sé í sjálfu sér prinsippmál að víkja fyrir handboltaleikjum, þykir hér vera um sérstakan atburð að ræða og sjálfsagt að verða við kröfu manna um frestun, ekki síst þar ...

Lesa meira »

Pörun 5. umferðar

Tvær frestaðar skákir úr fjórðu umferð Skeljungsmótsins – Skákþings Reykjavíkur voru tefldar í kvöld.   Jóhann H. Ragnarsson (2085) vann Kristján Örn Elíasson (1917) og Ingvar Ásbjörnsson (2020) sigraði Haraldur Baldursson (2033).  Nú liggur fyrir pörun í fimmtu umferð sem fram fer á miðvikudagskvöld.  Þá mætast m.a.: Guðmundur Kjartansson – Sigurður Daði Sigfússon, Kristján Eðvarðsson – Sævar Bjarnason og Þorvarður ...

Lesa meira »

Guðmundur vann Henrik

Guðmundur Kjartansson, hinn grjótharði TRingur, vann stórmeistarann Henrik Danielsen með svörtu í 4. umferð Skeljungsmótið. Önnur úrslit voru (2 skákum frestað):   Round 4 on 2008/01/13 at 14:00 Bo. No.     Name Rtg Pts. Result Pts.   Name Rtg   No. 1 1 GM Danielsen Henrik 2506 3 0 – 1 3 FM Kjartansson Gudmundur 2307 4 2 3 ...

Lesa meira »

Pörun 4. umferðar

1 1 GM Danielsen Henrik 2506 3   3 FM Kjartansson Gudmundur 2307 4 2 3 FM Sigfusson Sigurdur 2313 3   3   Gretarsson Hjorvar Steinn 2247 10 3 12 IM Bjarnason Saevar 2226 2½   3   Olafsson Thorvardur 2144 13 4 15   Bjornsson Sverrir Orn 2116 2½   2½   Thorgeirsson Sverrir 2120 14 5 5 ...

Lesa meira »

Úrslit 3. umferðar Skeljungsmótsins

Úrslit þriðju umferðar eru komnar á viðeigandi stað á heimasíðu Skeljungsmótsins. Einnig má benda á umfjöllun á www.skak.is

Lesa meira »

Grand Prix fimmtudagsmótin hefjast 17. janúar

Grand Prix mótin sívinsælu hefjast aftur eftir jólafrí fimmtudaginn 17. janúar. Bryddað verður upp á ýmsum nýjungum, sem verða auglýstar síðar. En sem sagt, ekkert mót í kvöld, fimmtudagskvöldið 10. janúar. Formaður

Lesa meira »

2. umferð í Skákþinginu

2. umferðin á Skákþinginu er komin inn. Úrslit má finna á heimasíðu mótsins., en nokkur óvænt úrslit áttu sér stað.

Lesa meira »

Ritstjóri í frí

Að eindreginni kröfu lesenda Skákhornsins hefur ritstjóri þessarar síðu tekið sér frí frá afskiptum af skák næstu misserin. Það kemur sá tími að mælirinn er fullur. Upplýsingar um gang mála á Skákþinginu mun vonandi verða að finna á www.skak.is, annars á Chess-results, sem nálgast má á heimasíðu Skákþingsins. Góðar stundir

Lesa meira »

Nokkrir keppendur á Skeljungsmótinu – Skákþingi Reykjavikur

Þetta árið settust 57 keppendur að tafli í Skeljungsmótinu – Skákþingi Reykjavíkur, allt frá ungum og efnilegum skákmönnum til manna á gamals aldri. Hart er barist og tekist á, en til þess er leikurinn gerður. Meðal keppenda er Bjarni Magnússon, en það eru meira en hálf öld síðan hann tók fyrst þátt í Skákþingi Reykjavíkur og heftur vísast teflt oftar ...

Lesa meira »

Úrslit nánast samkvæmt bókinni í 1. umferð á Skeljungsmótinu

Úrslit voru nær algjörlega eftir “bókinni” í 1. umferð Skeljungsmótsins, en henni lauk í dag. Í aðeins tveimur skákum urðu óvænt úrslit, annars vegar þegar Hörður Aron Hauksson náði jafntefi við Sverri Þorgeirsson og hins vegar þegar Dagur Kjartansson náði jafntefli gegn Frímanni Benediktssyni. Í öðrum skákum sigraði sá stigahærri þann stigalægri. Sjá má myndir frá 1. umferð í myndagalleríi ...

Lesa meira »

Skeljungsmótið hafið

58 skákmenn mættu til leiks á Skeljungsmótinu – Skákþingi Reykjavíkur 2008, sem hófst í dag í Skákhöll Reykjavíkur í Faxafeni 12. Meðal keppenda eru stórmeistarinn Henrik Danielsen, alþjóðlegi meistarinn Sævar Bjarnason og FIDE-meistararnir Ingvar Þór Jóhannesson, Sigurður D. Sigfússon, Davíð Kjartansson, Guðmundur Kjartansson, Sigurbjörn J. Björnsson og Halldór G. Einarsson, en sá síðarnefndi er að snúa aftur til leiks eftir ...

Lesa meira »

Skeljungsmótið – Skákþing Rvk hefst í dag

  Skákþing Reykjavíkur – Skeljungsmótið 2008 hefst á morgun    Skeljungsmótið 2008 – Skákþing Reykjavíkur  hefst í dag, sunnudaginn 6. janúar, kl. 14.00 í Skákhöll Reykjavíkur í Faxafeni 12. Nánari upplýsingar má finna með því að slá á linkinn hér að ofan, en hann vísar á upplýsingasíðu um Skeljungsmótið: En fyrir áhugasama, þá hafa 56 skákmenn boðað þátttöku sína, en þeir ...

Lesa meira »

Skákþing Reykjavíkur – Skeljungsmótið 2008 hefst á morgun

  Skeljungsmótið 2008 – Skákþing Reykjavíkur hefst á morgun, sunnudaginn 6. janúar, kl. 14.00 í Skákhöll Reykjavíkur í Faxafeni 12. Nánari upplýsingar má finna með því að slá á linkinn hér að ofan, en hann vísar á upplýsingasíðu um Skeljungsmótið: En fyrir áhugasama, þá hafa 58 skákmenn boðað þátttöku sína, en þeir eru (raðað eftir FIDE-stigum). Henrik Danielsen Haukar 2506   ...

Lesa meira »