Fréttir

Allar helstu fréttir frá starfi TR:

Dagur Andri Friðgeirsson Ungingameistari Reykjavíkur í skák

Dagur Andri Friðgeirsson, 13 ára og  Hallgerður H Þorsteinsdóttir, 15 ára, urðu í efsta sæti  á dögunum á Unglingameistaramóti Reykjavíkur. Þau háðu einvígi um Unglingameistaratitil Reykjavíkur í Skákhöllinni á fimmtudagskvöld. Tefldar voru fyrst tvær skákir með fimmtán mínútna umhugsunartíma, sama tíma og í mótinu.        Lauk þeirri viðureign svo að bæði náðu sigri með hvítu og voru því enn jöfn. Var ...

Lesa meira »

Arnar Gunnarsson sigraði og fékk fyrstu Grand Prix könnuna

    Það var fámennt en góðmennt Grand Prix skákmót TR og Fjölnis fimmtudagskvöldið 3. apríl. Í fyrsta sinn fékk sigurvegarinn Grand Prix könnu til merkis um sigur. Það fór vel á því að sigursælasti Grand Prix skákmaðurinn eftir áramót, Arnar Gunnarsson, skyldi vinna öruggan sigur og fá merkta Grand Prix könnu fyrstur allra. Könnurnar verða framvegis afhentar sigurvegurum Grand ...

Lesa meira »

Grand Prix mót í kvöld

Grand Prix mótaröð T.R. og Fjölnis  heldur áfram í kvöld, í Skákhöll Reykjavíkur að Faxafeni 12, og hefst kl. 19.30. Tefldar verða 7 umferðir eftir Monrad kerfi  með 7 mínútna umhugsunartíma. Aðgangseyrir er kr. 500 fyrir fullorðna en ókeypis er fyrir börn á grunnskólaaldri. Tónlistarverðlaun í boði að venju Skákstjóri í kvöld verður Helgi Árnason.

Lesa meira »

Rimaskóli sigraði á Reykjavíkurmóti grunnskóla

Reykjavíkurmót grunnskólasveita í skák fór fram í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkurí Skákhöllinni í Faxafeni í kvöld. Glaðir liðsstjórar Tíu sveitir frá fjórum skólum voru skráðar til keppni. Flestar voru sveitirnar frá Hólabrekkuskóla, eða fjórar talsins, þrjár komu úr Rimaskóla, tvær úr Laugalækjarskóla og ein frá Húsaskóla. Tefldar voru sex umferðir eftir Monrad- kerfi og var umhugsunartíminn 15 mínútur á skák. Leikar fóru ...

Lesa meira »

Kristján og Björn efstir á Öðlingamótinu

  Kristján Guðmundsson og Björn Þorsteinsson eru efstir með fullt hús vinninga eftir tvær umferðir á Skákmóti öðlinga, en 2. umferð fór fram í kvöld, miðvikudagskvöld.  Næstir koma Jóhann Örn Sigurjónsson, Eiríkur K. Björnsson og Magnús Gunnarsson með 1,5 vinning. Hvorki staða efstu manna né úrslit liggja þó fyrir vegna frestunar. Annars urðu úrslit í 2. umferð eftirfarandi:   Bo. ...

Lesa meira »

Stúlknameistaramót Reykjavíkur laugardaginn 5. apríl

  Stúlknameistaramót Reykjavíkur fer fram í Skákhöllinni í Faxafeni laugardaginn 5. apríl nk. og hefst kl. 14. Tefldar verða sjö umferðir eftir Monrad-kerfi og er umhugsunartími fyrir hverja skák 15 mínútur á hvorn keppanda. Þetta er í fimmta skipti sem Taflfélagi Reykjavíkur heldur mótið, en þess má geta að Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir hefur borið sigur úr býtum fjögur ár í ...

Lesa meira »

Tvö efst á Unglingameistaramóti Reykjavíkur

Unglingameistaramót Reykjavíkur fór fram í Skákhöllinni í Faxafeni sl. laugardag. Átján keppendur voru skráðir til leiks og voru tefldar sjö umfeðir eftir Monrad-kerfi með 15 mínúta umhugsunartíma á skák. Keppnin var jöfn. Fóru leikar svo að Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir og Dagur Andri Friðgeirsson urðu jöfn í efsta sætinu og munu tefla til úrslita um Unglingameistaratitilinn nk. fimmtudagskvöld kl 19:45 í ...

Lesa meira »

2. umferð í Öðlingamótinu

Nú liggur fyrir pörun í 2. umferð Skákmóts öðlinga sem fram fer á miðvikudagskvöld. Röðun 2. umferðar:   Name Rtg Result  Name Rtg Gudmundsson Kristjan  2240        Nordfjoerd Sverrir  1935 Thorsteinsson Bjorn  2180        Magnusson Bjarni  1735 Bjornsson Eirikur K  1960        Sigurjonsson Johann O  2050 Vigfusson Vigfus  1885        Ragnarsson Johann  2020 Gudmundsson Einar S  1750        Loftsson Hrafn  ...

Lesa meira »

Arnar sigraði á Grand Prix

Það var að venju hart barist á Grand Prix móti Fjölnis og TR í Skákhöllinni Faxafeni á fimmtudagskvöldið. Arnar E. Gunnarsson gerði sér lítið fyrir og lagði alla andstæðinga sína að velli og hreppti efsta sætið með fullt hús vinninga. Í ððru sæti varð Arnar Þorsteinsson með sex vinninga af sjö mögulegum, tapaði aðeins fyrir nafna sínum. Þriðji  í röðinni ...

Lesa meira »

Reykjavíkurmót grunnskóla haldið 2. apríl

Reykjavíkurmót grunnskólasveita í skák fer fram í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur í Skákhöllinni í Faxafeni 12 miðvikudaginn 2. apríl. Þátttökurétt hafa allir grunnskólar í Reykjavík og getur hver skóli sent eins margar sveitir og kostur er. Hver sveit skal skipuð fjórum liðsmönnum oig skal þeim raðað í sveitir eftir styrkleika.. Skólastjórar eru hvattir til að mynda sem flest lið og senda ...

Lesa meira »

Unglingameistaramót Reykjavíkur á laugardaginn

Unglingameistaramót Reykjavíkur verður haldið í Skákhöllinni Faxafeni 12 laugardaginn 29. mars kl. 14. Þátttökurétt eiga allir unglingar á grunnskólaaldri en unglingameistarnafnbótina og farandbikarinn hlýtur efsti keppandi sem búsettur er í Reykjavík. Umhugsunartími er 15 mínútur á mann til að ljúka skák og verða tefldar sjö umferðir. Veittir verða verðlaunagripir fyrir þrjú efstu sætin, auk þess verða happadrættisverðlaun. Núverandi Unglingameistari Reykjavíkur ...

Lesa meira »

Grand Prix í kvöld

Grand prix mót í Skákhöllinni í Faxafeni í kvöld   Grand Prix mótaröðinni verður fram haldið í kvöld kl. 19:30 í  Faxafeninu. Það eru Skákdeild Fjölnis og Taflfélag Reykjavíkur sem sjá um mótaröðina í sameiningu. Umhugsunartími er 7 mínútur á skák og tefldar verða 7 umferðir. Góð tónlistarverðlaun verða í boði frá íslenskum útgefendum. Þáttökugjald er kr. 500 en frítt ...

Lesa meira »

Miklir öðlingar á ferð

Skákmót öðlinga hófst í gær í félagsheimili TR.  Þátttaka er góð en 21 skákmaður tekur þátt í mótinu og þeirra á meðal Kristján Guðmundsson, Hrafn Loftsson, Björn Þorsteinsson og Páll Þórhallsson, sem tekur þátt í sínu fyrsta móti í mörg herrans ár.   Úrslit í fyrstu umferð voru að flestu leyti hefðbundin, þ.e. hinir stigahærri sigruðu hina stiglægri.  Hraðskákmeistari TR, gerði ...

Lesa meira »

Grand Prix mót á fimmtudagskvöld

Grand Prix mót verður haldið n.k. fimmtudagskvöld, og hefst kl. 19.30. Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma. Verðlaun verða í boði Zonets og fleiri aðila. Skákstjóri Óttar Felix Hauksson

Lesa meira »

Skákmót öðlinga hefst í kvöld

Skákmót öðlinga,40 ára og eldri hefst miðvikudaginn 26.mars n.k. í Faxafeni 12 félagsheimili TR.kl 19:30. Tefldar verða 7.umferðir eftir Svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 1,30 klst á alla skákina + 30 sek viðbótartími á hvern leik fyrir báða keppendur. Dagskrá. 1.umferð miðvikud. 26.mars kl 19:30 2.umferð miðvikud. 02.apríl kl 19:30 3.umferð miðvikud. 09.apríl kl 19:30 4.umferð miðvikud. 16.apríl kl 19:30 5.umferð ...

Lesa meira »

Hjörvar Steinn Grétarsson sigurvegari Grand Prix mótsins á

Grand prix mótaröðinni var fram haldið sl. fimmtudagskvöld og voru tefldar átta umferðir að þessu sinni.   Hjörvar Steinn Grétarsson sigraði og hlaut fullt hús vinninga. Í öðru sæti varð skákstjórinn Óttar Felix Hauksson með sex vinninga. Þriðja sætinu deildu síðan ungu drengirnir Birkir Karl Sigurðsson og Dagur Andri Friðgeirsson með 3 vinninga hvor.     Góð tónlistarverðlaun voru í boði frá ...

Lesa meira »

Grand Prix mótið í kvöld, Skírdag

Grand Prix mót verður haldið í kvöld, fimmtudagskvöld, og hefst kl. 19.30. Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma. Verðlaun verða í boði Zonets og fleiri aðila. Skákstjóri Óttar Felix Hauksson.

Lesa meira »

Skákmót öðlinga 2008

Skákmót öðlinga 2008. Skákmót öðlinga,40 ára og eldri hefst miðvikudaginn 26.mars n.k. í Faxafeni 12 félagsheimili TR.kl 19:30. Tefldar verða 7.umferðir eftir Svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 1,30 klst á alla skákina + 30 sek viðbótartími á hvern leik fyrir báða keppendur. Dagskrá. 1.umferð miðvikud. 26.mars kl 19:30 2.umferð miðvikud. 02.apríl kl 19:30 3.umferð miðvikud. 09.apríl kl 19:30 4.umferð miðvikud. 16.apríl ...

Lesa meira »

Hannes Hlífar í 1.-3. sæti á Rvk open

Hannes Hlífar Stefánsson, stórmeistari úr T.R., lenti í 1.-3. sæti á Rvk open sem lauk í gærkvöldi. Hannes hlaut 7 vinninga af 9 mögulegum og tapaði engri skák. Hannes tefldi á 1. borði fyrir Íslandsmeistara T.R. í nýafstöðnu Íslandsmóti skákfélaga og stóð sig vel þar líka.  T.R. óskar Hannesi til hamingju með þennan góða árangur.

Lesa meira »