Fréttir

Allar helstu fréttir frá starfi TR:

Barna- og unglingaæfingar TR hefjast 13. september

Skákæfingar (skákkennsla og skákmót) fyrir stelpur og stráka 15 ára og yngri hefjast að nýju hjá Taflfélagi Reykjavíkur laugardaginn 13. september kl. 14 í húsnæði félagsins Faxafeni 12. Laugardagsæfingarnar verða í allan vetur frá kl. 14 – 16. Þátttaka er ókeypis.

Lesa meira »

Hannes Hlífar Íslandsmeistari í 10. sinn!

Hannes Hlífar Stefánsson, Taflfélagi Reykjavíkur, varð í gær Íslandsmeistari í skák í tíunda sinn á ellefu árum.  Aðeins árið 2000 sigraði Hannes ekki en þá var hann ekki meðal þátttakenda í Íslandsmótinu. Sigurinn í ár var öruggur hjá Hannesi og var hann 1,5 vinningi á undan næsta manni, stórmeistaranum Henrik Danielsen. 

Lesa meira »

TR-ingar að tafli á Skákþingi Íslands 2008

Í kvöld var Skákþing Íslands sett með glæsibrag.  Að þessu sinni taka 10 félagsmenn Taflfélags Reykjavíkur þátt í áskorendaflokki og 4 í landsliðflokki en alls eru keppendur 29 í áskorendaflokki og 12 í landsliðsflokki. TR-ingar unnu flestir sínar skákir í fyrstu umferðinni en af helstu úrslitum má nefna að Guðmundur Kjartansson lagði alþjóðlega meistarann Stefán Kristjánsson í landsliðsflokki og Geirþrúður ...

Lesa meira »

TR vann öruggan sigur á Fjölni

Íslandsmeistarar Taflfélags Reykjavíkur unnu öruggan sigur á Skákdeild Fjölnis í 2. umferð (8 liða úrslitum) Hraðskákkeppni taflfélaga, sem fram fór 25. ágúst síðastliðinn. Lokatölur urðu 49 vinningar gegn 23 vinningum gestanna.   Bergsteinn Einarsson fékk flesta vinninga heimamanna en Ingvar Ásbjörnsson var bestur gestanna.  Einstaklingsúrslit: Taflfélag Reykjavíkur: Arnar E. Gunnarsson 4 v. af 4 Bergsteinn Einarsson 9½ v. af 11 ...

Lesa meira »

Ný stjórn T.R.

Óttar Felix Hauksson var endurkjörinn formaður Taflfélags Reykjavíkur á aðalfundi sem haldinn var í húsakynnum félagsins í gærkvöldi. Nýja stjórn skipa, auk formanns, Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir, Júlíus L. Friðjónsson, Ólafur S. Ásgrímsson, Kristján Örn Elíasson, Magnús Kristinsson og Þórir Benediktsson. Í varastjórn eru Torfi Leósson, Björn Jónsson, Daði Ómarsson og Elín Guðjónsdóttir. Hugur er í nýrri stjórn að hefjast handa ...

Lesa meira »

Aðalfundur Taflfélags Reykjavíkur 2008

Aðalfundur Taflfélags Reykjavíkur 2008  verður haldinn fimmtudaginn 14. ágúst kl. 20  í húsakynnum félagsins að Faxafeni 12 í ReykjavíkAllir félagsmenn eru hvattir til að mæta. Venjuleg aðalfundarstörf.Stjórnin.

Lesa meira »

Grand Prix mót í kvöld

Í kvöld fimmtudaginn 22. maí verður Grand Prix mótaröðinni fram haldið í Skákhöllinni í Faxafeni. Tefldar verða sjö umferðir með sjö mínútna umhugsunartíma á skák. Mótið hefst klukkan 19:30. Grand Prix kannan góða er veitt fyrir efsta sætið ásamt tónlistarverðlaunum. Sá er bestum samanlögðum árangri nær í mótaröðinni fær vegleg ferðaverðlaun, en mótaröðinni lýkur fimmtudaginn 29. maí. Skákdeild Fjölnis og ...

Lesa meira »

Alþjóðlegt Boðsmót TR 16.-24. júní 2008

Boðsmót TR verður alþjóðlegt mót annað árið í röð. Mótið er haldið til þess að færa ungum Íslendingum meiri reynslu og gefa þeim jafnframt  kost á að reyna við áfanga að alþjóðlegum meistaratitli eða afla sér reynslu. Tíu keppendur eru skráðir til leiks og verða tefldar níu umferðir. Sex og hálfan vinning þarf til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. ...

Lesa meira »

Eiríkur Örn Brynjarsson gengur í TR

  Enn einn sterkur liðsaukinn barst Taflfélagi Reykjavíkur nú um helgina, þegar Eiríkur Örn Brynjarsson ákvað að ganga til liðs við félagið. Eiríkur Örn er fjórði liðsmaður hinnar öflugu skáksveitar Salaskóla sem á undanförnum vikum hafa gengið í raðir TR.  TR fagnar innilega komu Eiríks í félagið. Jafnframt því að vera efnilegur skákmaður er hann drengur góður og styrkir vel ...

Lesa meira »

Sumarhátíð Unglingadeildar TR

  Þó nokkurra góðra félaga væri saknað var samt ágæt mæting á Sumarhátíð Unglingadeildar TR laugardaginn 17 maí. Byrjað var á að efna til hraðskákmóts og skráðu 13 krakkar sig til leiks.        Tefldar voru 13 umferðir og var allan tímann hressilega teflt og hart tekist á. Dagur Andri og Páll Andrason háðu hnífjafna baráttu og Guðmundur Lee ...

Lesa meira »

      Taflfélag Reykjavíkur    Unglingadeild   Sumarhátíð TR   laugardaginn 17. maí kl. 14 Skákhöllin Faxafeni 12   1.      Létt skákmót 2.      Pizzuveisla 3.      Ókeypis bíóferð (Harold og Kumar, sprenghlægileg gamanmynd í Laugarásbíó kl. 18)     Torfi Leósson mætir og segir frá skákþjálfuninni í sumar

Lesa meira »

Guðmundur Kristinn Lee er genginn í TR

Hinn efnilegi Guðmundur Kristinn Lee, einn af heimsmeisturum Salaskóla, hefur ákveðið að ganga til liðs við Taflfélag Reykjavíkur. Guðmundur hefur verið í Taflfélaginu Helli fram til þessa. Guðmundur verður öflug viðbót við unglingalið Taflfélagsins, sem ætlar sér stóra hluti á næsta ári, en nýverið gengu tveir aðrir Salaskólastrákar til liðs við TR. Taflfélagið býður Guðmund hjartanlega velkominn í félagið og ...

Lesa meira »

Sverrir Þorgeirsson sigraði á Grand Prix

Fall er fararheill er oft sagt. Sverrir Þorgeirsson skákmeistarinn efnilegi úr Hafnarfirði mætti alþjóðlega meistaranum Arnari E.Gunnarssyni í fyrsu umferð Grand Prix mótsins í gærkvöldi og varð að lúta í lægra haldi.   Sverrir lét síðan engan bilbug á sér finna, lagði hvern andstæðingin af öðrum að velli og stóð að lokum uppi sem sigurvegari kvöldsins með 6 vinninga af ...

Lesa meira »

Grand Prix mót í kvöld

Í kvöld fimmtudaginn 15. maí verður Grand Prix mótaröðinni fram haldið í Skákhöllinni í Faxafeni. Tefldar verða sjö umferðir með sjö mínútna umhugsunartíma á skák. Mótið hefst klukkan 19:30. Grand Prix kannan góða er veitt fyrir efsta sætið ásamt tónlistarverðlaunum. Sá er bestum samanlögðum árangri nær í mótaröðinni fær vegleg ferðaverðlaun, en mótaröðinni lýkur fimmtudaginn 29. maí. Skákdeild Fjölnis og ...

Lesa meira »

Róbert sigraði á Hraðskákmóti Öðlinga

Róbert Harðarson varð í kvöld hraðskákmeistari öðlinga eftir spennandi og fjölmennt mót sem fram fór í félagsheimili TR í kvöld.  Róbert fékk 7 vinninga í 9 skákum og hafði betur en Kristján Guðmundsson og Jóhann H. Ragnarsson eftir stigaútreikning.  Í kvöld fór jafnframt fram verðlaunaafhending fyrir sjálft aðalmótið.  Birna bauð upp á glæsilegt bakkelsi. Ólafur og Birna gáfu nýjan bikar ...

Lesa meira »

Kristján Örn Elíasson sigrar á sterku Grand Prix móti

  Hraðskákmeistari Taflfélags Reykjavíkur, Kristján Örn Elíasson, sýndi mikið harðfylgi þegar hann sigraði á sterku Grand Prix móti í Faxafeninu í gærkvöldi, fimmtudagskvöld. Kristján Örn náði að skjóta aftur fyrir sig m.a.alþjóðlega meistaranum Arnari E.Gunnarssyni sem hefur reynst nær ósigrandi í annari Grand Prix mótaröðinni og hinum þrautreynda og margkrýnda hraðskákmeistara Braga Halldórssyni. Kristján Örn hlaut 7½ vinning af 9 ...

Lesa meira »

Grand Prix mót Fjölnis og TR í Faxafeninu í kvöld

Í kvöld fimmtudaginn 8. maí verður Grand Prix mótaröðinni fram haldið í Skákhöllinni í Faxafeni. Tefldar verða sjö umferðir með sjö mínútna umhugsunartíma á skák. Mótið hefst klukkan 19:30. Grand Prix kannan góða er veitt fyrir efsta sætið ásamt tónlistarverðlaunum. Sá er bestum samanlögðum árangri nær í mótaröðinni fær vegleg ferðaverðlaun, en mótaröðinni lýkur fimmtudaginn 29. maí. Skákdeild Fjölnis og ...

Lesa meira »

Jóhann H. Ragnarsson öðlingameistari

  Fyrir síðustu umferð Öðlingamótsins voru Kristján Guðmundsson og Björn Þorsteinsson efstir með 4,5 vinning úr 6 skákum, en þeir töpuðu báðir í síðustu umferð og þrír skákmenn enduðu efstir og jafnir með 5 vinninga, þeir Jóhann H. Ragnarsson, Hrafn Loftsson og  gamla kepman Jóhann Örn Sigurjónsson. Jóhann Örn sigraði Kristján, Hrafn vann sigur á Birni Þorsteinssyni.Jóhann Hjörtur vann Hörð Garðarsson. ...

Lesa meira »

Pörun í 7. umferð Öðlingamótsins

Sjöunda umferð Öðlingamótsins fer fram nk miðvikudagskvöld. Þá tefla saman: Round 7 on 2008/05/07 at 19:30 Bo. No.   Name Rtg Pts. Result Pts. Name Rtg   No. 1 5 Sigurjonsson Johann O 2050 4   4½ Gudmundsson Kristjan 2240 1 2 2 Loftsson Hrafn 2225 4   4½ Thorsteinsson Bjorn 2180 3 3 12 Gardarsson Hordur 1855 4   ...

Lesa meira »