Fimmtudagsmót í kvöld



Hin hefðbundnu fimmtudagsmót Taflfélags Reykjavíkur halda áfram í kvöld.  Tefldar verða 9 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma og hefst mótið kl. 19.30 en húsið opnar kl. 19.10.  Fríar veitingar í boði og sigurvegarinn fær að launum glæsilegan verðlaunapening.  Teflt er í skákhöll Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 og þátttökugjald er kr 500 en frítt fyrir 15 ára og yngri.

Jafnframt er ítrekað að á síðasta móti vetrarins verður happdrætti þar sem dregnir verða út þrír vinningar, kr. 40.000, 20.000 og 10.000.  Allir sem hafa mætt á minnst fimm mót í vetur verða með í útdrættinum og því oftar sem er mætt, því meiri líkur eru á að verða dreginn út.  Síðasta mótið verður fimmtudaginn 28. maí og því er nægt tækifæri enn til að bæta mætinguna ogjafnframt að ná fimm mótum ef enn hefur ekki verið mætt.