Fimmtudagsæfingar hefjast að nýju



Taflfélag Reykjavíkur og Skákdeild Fjölnis hafa hafið samstarf um reglulegar skákæfingar, sem hefjast munu í byrjun september næstkomandi. Teflt verður í Skákhöllinni í Faxafeni. Félögin standa sameiginlega að æfingunum.

Æfingar verða vikulega og hefjast kl. 19:30.

Nánari fréttir verða sagðar, þegar nær dregur.