Davíð Kjartansson sigraði á 2. Grand Prix fimmtudagsmóti TR



Vel heppnuðu Grand Prix móti lauk með öruggum sigri Davíðs Kjartanssonar.  Félagarnir Vilhjálmur Pálmason og Daði Ómarsson urðu jafnir í 2.-3. sæti.  Unglingaverðlaun hlaut Hjörvar Steinn Grétarsson og kvennaverðlaununum skiptu þær Elsa María Þorfinnsdóttir, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og Tinna Kristín Finnbogadóttir.

Keppendur voru 20 talsins og urðu úrslit eftirfarandi:

1. Davíð Kjartansson 6,5

2.-3. Vilhjálmur Pálmason og Daði Ómarsson 5,5

4. Jóhann H. Ragnarsson 5

5.-6. Hjörvar Steinn Grétarsson og Torfi Leósson 4,5

7.-8. Óttar Felix Hauksson og Dagur Andri Friðgeirsson 4

9.-10. Helgi Brynjarsson og Vigfús Óðinn Vigfússon 3,5

11.-15. Elsa María Þorfinnsdóttir, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, Tinna Kristín Finnbogadóttir, Friðþjófur Max Karlsson og Friðrik Þjálfi Stefánsson 3

16.-17. Matthías Pétursson og Eggert Ísólfsson 2,5

18. Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir 2

19. Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir 1

20. Stefanía Bergljót Stefánsdóttir 0,5

Næsta Grand Prix fimmtudagsmót verður haldið fimmtudaginn 11. október kl.19.30 í Skákhöllinni Faxafeni 12.