Daði Ómarsson fór hamförum á Hraðskákmótaröð TR



Daði Ómarsson gaf engin grið á Hraðskákmótaröð TR þegar Mót 2 var teflt í kvöld. Daði nældi sér í 10,5 vinning í 11 skákum og var 1,5 vinning fyrir ofan sigurvegara fyrsta mótsins, Vigni Vatnar Stefánsson, sem varð annar með 9 vinninga. Hilmir Freyr Heimisson varð þriðji með 8 vinninga. Tefldar voru 11 umferðir, allir við alla, með tímamörkunum 3+2.

Lokastaða mótsins:

HMRTR - Mót 2