Borgarskákmótið fer fram á morgun, þriðjudag



Borgarskákmótið fer fram þriðjudaginn 14. ágúst, og hefst það kl. 16:00. Mótið fer fram venju samkvæmt í Ráðhúsi Reykjavíkur og standa Reykjavíkurfélögin, Taflfélag Reykjavíkur og Taflfélagið Hellir, að mótinu, eins og þau hafa gert síðustu ár.

Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar taka þátt í því. Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst eftir að opnað verður fyrir skráningu. Mótið er öllum opið og er þátttaka ókeypis en skráning fer fram hér.

Einnig er hægt að skrá sig í í síma 866 0116 Vigfús og 862 6290 (Sigurlaug). Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma. Þetta er í 27. sinn sem mótið fer fram og er þetta iðulega eitt best sótta skákmót hvers árs. Í fyrra sigraði Arnar Gunnarsson, sem þá tefldi fyrir Perluna.

Hægt er að fylgjast með skráningu í mótið hér.

Verðlaun:

  1. 15.000 kr.
  2. 10.000 kr.
  3. 5.000 kr.