Björgvin Víglundsson með fullt hús á Þriðjudagsmóti



Björgvin Víglundsson mætti eftir nokkurt hlé á Þriðjudagsmót TR og gerði sér lítið fyrir og sigraði með fullu húsi á mótinu þann 1. júní síðastliðinn. Þeir Gauti Páll Jónsson voru efstir og jafnir fyrir lokaumferðina en Björgvin sneri á Gauta í snúnu biskupaendatafli. Með þrjá vinninga af fjórum urðu áðurnefndur Gauti, Arnljótur Sigurðsson, Aðalsteinn Thorarensen og Helgi Hauksson. Öll úrslit mótsins má nálgast á chess-results. 16 manns mættu til leiks.

Nú er sumardagskráin hafin og verða þá þriðjudagsmótin hálfsmánaðarlega. Næsta mót er því þriðjudaginn 15. júní næstkomandi klukkan 19:30 í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12.