Björgvin og Þorvarður efstir í A-flokki Haustmóts TR



Haustmót Taflfélags Reykjavíkur hófst í gær og var hetjulega glímt í skákum fyrstu umferðar. 44 keppendur tefla í þremur flokkum og má búast við jafnri og spennandi keppni í öllum flokkum. Stigahæsti keppandi mótsins er landsliðseinvaldurinn og ólympíufarinn Ingvar Þór Jóhannesson (2368). Þó Ingvar Þór sé sigurstranglegur þá mun hann án efa fá harða samkeppni frá nokkrum af efnilegustu skákmönnum þjóðarinnar. Má þar helst nefna FIDE meistarana Dag Ragnarsson (2272) og Oliver Aron Jóhannesson (2255), og svo er ungstirnið Vignir Vatnar Stefánsson (2129) til alls vís. Þá er hinn efnilegi Björgvin Víglundsson (2185) vafalítið vel vopnum búinn eftir að hafa tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í flokki 65 ára og eldri á dögunum.

image

Gauti Páll og Þorvarður glíma í 1.umferð HTR

A-flokkur

Björgvin Víglundsson mætti sterkur til leiks og lagði Birki Karl Sigurðsson með svörtu í snarpri skák. Þorvarður Fannar Ólafsson byrjaði einnig vel er hann stýrði svört mönnunum til sigurs gegn Gauta Páli Jónssyni, eftir nokkrar sviptingar. Þeir Björgvin og Þorvarður hafa því tekið forystu í A-flokki. Þá tefldu Dagur Ragnarsson og Jón Trausti Harðarson tveggja skorblaða skák þar sem Dagur pressaði undir lokin með stakan hrók gegn biskupi Jóns. Dagur komst þó lítt áleiðis gegn varnarleik Jóns og jafntefli varð því niðurstaðan. Öðrum skákum lauk með jafntefli.

Round 1 on 2016/09/18 at 14:00
Bo. No. Rtg Name Result Name Rtg No.
1 1 2082 Jonsson Gauti Pall 0 – 1 Olafsson Thorvardur 2184 10
2 2 2192 Loftsson Hrafn ½ – ½ FM Johannesson Ingvar Thor 2367 9
3 3 2129 Stefansson Vignir Vatnar ½ – ½ FM Johannesson Oliver 2255 8
4 4 2272 FM Ragnarsson Dagur ½ – ½ Hardarson Jon Trausti 2100 7
5 5 1900 Sigurdsson Birkir Karl 0 – 1 Viglundsson Bjorgvin 2185 6
image

Veronika Steinunn lagði Hörð Aron að velli í 1.umferð HTR

B-flokkur

Það var barist til síðasta manns og engin jafntefli leyfð í B-flokki. Alexander Oliver Mai vann reynsluboltann Sigurlaugu R. Friðþjófsdóttur með svörtu og heldur því áfram að hrekkja stigahærri andstæðinga líkt og hann hefur gert svo mikið af síðustu misseri. Bróðir hans, Aron Þór, vann Róbert Luu með hvítu. Ólympíufarinn Veronika Steinunn Magnúsdóttir vann stigahæsta keppanda flokksins, Hörð Aron Hauksson, með svörtu og virðist til alls líkleg. Jón Þór Lemery vann mikinn seiglusigur með hvítu gegn hinum efnilega Stephan Briem eftir miklar sviptingar. Þá vann Magnús Kristinsson með svörtu gegn Halldóri Kristjánssyni.

Round 1 on 2016/09/18 at 14:00
Bo. No. Rtg Name Result Name Rtg No.
1 1 1649 Kristjansson Halldor 0 – 1 Kristinsson Magnus 1833 10
2 2 1591 Lemery Jon Thor 1 – 0 Briem Stephan 1569 9
3 3 1845 Mai Aron Thor 1 – 0 Luu Robert 1672 8
4 4 1802 Fridthjofsdottir Sigurl. Regi 0 – 1 Mai Alexander Oliver 1656 7
5 5 1867 Hauksson Hordur Aron 0 – 1 Magnusdottir Veronika Steinun 1777 6
image

Hinn eitilharði Hörður Jónasson vann í 1.umferð HTR

Opinn flokkur

Í opna flokknum bar hæst að hinn ungi og efnilegi Benedikt Briem hélt jöfnu með svörtu gegn Tryggva K. Þrastarsyni. Önnur úrslit voru eftir bókinni margfrægu.

Bo. No. Name Rtg Pts. Result Pts. Name Rtg No.
1 1 Bjarnason Arnaldur 1647 0 1 – 0 0 Hakonarson Sverrir 1338 12
2 13 Alexandersson Orn 1217 0 0 – 1 0 Briem Hedinn 1563 2
3 3 Vignisson Ingvar Egill 1554 0 1 – 0 0 Thorisson Benedikt 1169 14
4 15 Baldursson Atli Mar 1167 0 0 – 1 0 Jonasson Hordur 1532 4
5 5 Sigurvaldason Hjalmar 1485 0 1 – 0 0 Olafsson Arni 1156 16
6 17 Karlsson Isak Orri 1148 0 0 – 1 0 Ulfsson Olafur Evert 1464 6
7 7 Thrastarson Tryggvi K 1450 0 ½ – ½ 0 Briem Benedikt 1093 18
8 19 Gudmundsson Gunnar Erik 1082 0 0 – 1 0 Kristjansson Halldor Atli 1417 8
9 9 Magnusson Thorsteinn 1415 0 1 – 0 0 Omarsson Adam 1065 21
10 22 Moller Tomas 1028 0 0 – 1 0 Davidsson Stefan Orri 1386 10
11 11 Heidarsson Arnar 1340 0 1 – 0 0 Haile Batel Goitom 0 23
12 24 Hakonarson Oskar 0 0 1 bye

 

Skákir 1.umferðar eru nú aðgengilegar áhugasömum skákáhugamönnum en það var Daði Ómarsson sem sló þær inn. Nánari upplýsingar um mótið eru að finna á chess-results.

Næsta umferð verður tefld á miðvikudagskvöld og verða klukkur settar í gang klukkan 19:30. Áhorfendur eru hjartanlega velkomnir í félagsheimilið, og vitaskuld verður heitt á könnunni og ilmandi bakkelsi í kaffihúsi Birnu.