Barna- og unglingameistaramót TR fer fram á sunnudag



10_Ung_Stulk_TR

Barna- og unglingameistaramót sem og Stúlknameistaramót Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 13. nóvember í félagsheimili T.R. Faxafeni 12. Taflið hefst kl.14.

Tefldar verða 7 umferðir eftir Monrad-kerfi með umhugsunartímanum 15 mín. á skák.

Teflt verður í tveimur flokkum: opnum flokki og stúlknaflokki. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í opna flokknum og þar fyrir utan hlýtur efsti T.R.-ingurinn titilinn Unglingameistari T.R. 2016.

Þá verða veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í stúlknaflokknum og þar fyrir utan hlýtur efsta stúlkan úr T.R. titilinn Stúlknameistari T.R. 2016.

Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efsta sætið í aldursflokknum 13-15 ára (f. 2001-2003), 11-12 ára (f. 2004-2005), 9-10 ára (f. 2006-2007) sem og 8 ára og yngri (f. 2008 og síðar) í báðum flokkum (opna flokknum og stúlknaflokknum).

Mótið er opið öllum krökkum 15 ára og yngri (fædd 2001 og síðar).

Aðgangur á mótið er ókeypis.

Skráningarform

Skráðir keppendur