Author Archives: Þórir

3 í beinni í Mysliborz

Önnur umferð er nú nýhafin í Mysliborz og eru þrír af okkar drengjum í beinni útsendingu: Daði Ómarsson fær erfiðasta verkefnið, en hann hefur hvítt á móti sjálfum skipuleggjanda mótsins, stórmeistaranum Juri Zezulkin. Matthías Pétursson er með hvítt á móti skákkonunni Svetlönu Cherednichenko og loks er Vilhjálmur Pálmason með svart á móti Aleksander Smirnov. Einar Sigurðsson og Aron Ellert Þorsteinsson ...

Lesa meira »

3 sigrar og tvö töp í Mysliborz

Þá er mótið í Mysliborz hafið og skáksveit Laugalækjarskóla er meðal þátttakenda, reyndar sem einstaklingar, en ekki sem sveit.  Skrifari (Torfi Leósson) er með í för sem liðsstjóri. Mysliborz er 15.000 manna vinalegur pólskur bær, rétt við þýsku landamærin. Raunar var hentugast fyrir okkur að fljúga til Berlínar í fyrradag og dvelja þar í einn og hálfan dag og taka ...

Lesa meira »

Pörun og nokkur úrslit frá Póllandi

Samkvæmt símtali frá Torfa Leóssyni, fararstjóra og aðalþjálfara Laugalækjarliðsins, hafa tveir strákanna lokið skákum sínum, en Vilhjálmur Pálmason sigraði í aðeins 9 leikjum, og Matthías Pétursson hefur jafnframt sigrað sína skák. Báðir fengu þeir frekar auðvelda andstæðinga á 2 neðstu borðunum.  Einar Sigurðsson og Aron Ellert Þorsteinsson tefla hins vegar á 2 efstu borðunum, gegn stigahæstu mönnum mótsins. Sigur Vilhjálms ...

Lesa meira »

1. umferð hafin í Mysliborz

Fyrsta umferð er hafin í opna alþjóðamótinu í Mysliborz, en þar tekur skáksveit Laugalækjaskóla þátt. Upphaflega átti mótið að fara fram í 2 flokkum, en skyndilega setti Skáksamband Póllands hraðskákmeistaramót landsins ofan í þetta mót, svo fjölmargir af hinum innfæddu, sem höfðu skráð sig (sumir ekki verið á listanum, sem var birtur hér fyrr í dag), hættu við, þ.e. flestir ...

Lesa meira »

Mysliborz-mótið hefst í dag

  Í dag, 11. júní, hefst opna skákmótið í Mysliborz, Póllandi, þar sem skáksveit Laugalækjarskóla tekur þátt.  Keppt er í tveimur flokkum, A-flokki og B-flokki. Í A-flokki taka þátt Daði Ómarsson, Vilhjálmur Pálmason og Matthías Pétursson. Einar Sigurðsson og Aron Ellert Þorsteinsson taka þátt í neðri flokki. Pörun fyrir 1. umferð liggur ekki fyrir, en keppendalistinn er eftirfarandi, miðað við ...

Lesa meira »

Laugalækjarskóli í víking

Skáksveit Laugalækjarskóla er komin af stað til Evrópu, þar sem liðsmenn hennar munu taka þátt í Evrópukeppni grunnskólasveita, sem hefst í Búlgaríu síðar í mánuðinum. Fyrst munu sveitarmeðlimir taka þátt í alþjóðlegu móti í Póllandi til upphitunar. Svo skemmtilega vildi til, að á leiðinni út hitti skáksveitin forseta Skáksambands Íslands, Guðfríði Lilju Grétarsdóttir, sem var á leið til útlanda. Sveit ...

Lesa meira »

Hressómót Hróksins

Laugardaginn 9. júní klukkan 14 blæs Hrókurinn til hraðskákmóts á Hressó, garðskálanum. Tefldar verða 8 umferðir með 5 mínútna umhugsunartíma. Mótið í heild tekur innan við 2 klst. Engin þátttökugjöld. (Fréttatilkynning frá Hróknum) Taflfelag.is hvetur félagsmenn í Taflfélaginu til að fjölmenna. Skák er skemmtileg.  

Lesa meira »

Laugalækjaskólasveitin á útleið

      Skáksveit Laugalækjaskóla mun nú halda í víking á laugardaginn kemur og dvelja erlendis við skákiðkun út júnímánuð.   Fyrst munu meðlimir sveitarinnar taka þátt í Mysliborz-mótinu, pólsku grand-prix skákmóti, sem er hluti af eins konar bikarkeppni, sem fer fram hér og þar um landið á keppnistímabilinu. Mysliborz er skemmtilegur staður í Póllandi og má m.a. skoða skemmtilega ...

Lesa meira »

Glæsileg skáksíða!

Hrannar Baldursson hefur nú sett upp glæsilega skáksíðu, sem allir skákáhugamenn ættu að fylgjast grannt með.

Lesa meira »

Kveðjur til Búdapest

Tveir vinir okkar T.R. -inga úr Taflfélaginu Helli sitja nú við taflborðið í Búdapest. Það eru hinn ungi og efnilegi Hjörvar Steinn Grétarsson og nýkrýndur AM-norms hafi Ingvar Þór Jóhannesson, sem einnig er þarna í hlutverki þjálfarans. Hjörvar hefur staðið sig ágætlega eftir þrjár umferðir og hefur gert þrjú jafntefli. Ingvar hefur gert tvö jafntefli og tapað einni. Menn voru ...

Lesa meira »

Landsmótið skólaskák: yngri flokkur

  Dagur Andri Friðgeirsson (Fjölni) er Íslandsmeistari yngri flokks Landsmótsins í skólaskák.  Einar Ólafsson (T.R.), sem ásamt Degi leiddi nánast allt mótið, varð annar en hann tapaði fyrir Geirþrúði Önnu Guðmundsdóttur (T.R) í lokumaferðinni.  Nökkvi Sverrisson (TV) og Geirþrúður urðu í 3.-4. sæti.  (Tekið af www.skak.is) Úrslit 11. umferðar: Fridgeirsson Dagur Andri  1 – 0 Karlsson Mikael Johann  Gudmundsdottir Geirthrudur Anna  ...

Lesa meira »

Einar og Dagur enn efstir!

Þegar 10. umferðir eru búnar á Landsmótinu í skólaskák, yngri flokki, eru Einar Ólafsson T.R. og Dagur Andri Friðgeirsson Fjölni enn efstir og jafnir, sbr. meðfylgjandi töflu. Fyrirfram hefði mátt búast við öruggum sigri Dags Andra, sem er langstigahæstur keppenda, en okkar maður hefur svo sannarlega staðið sig vel. T.R. sendir Einari Ólafssyni baráttukveðjur. Rk.   Name FED RtgN RtgI ...

Lesa meira »

Spenna í yngri flokki Landsmótsins

  Eftir átta umferðir í yngri flokki Landsmótsins í skólaskák eru Dagur Andri Friðgeirsson úr Fjölni og T.R. ingurinn Einar Ólafsson efstir og jafnir með 6,5 vinninga. Eyjamaðurinn Nökkvi Sverrisson, Friðrik Þjálfi Stefánsson úr T.R. og Akureyringurinn Mikael J. Karlsson fylgja á eftir. Um nánari úrslit sjá töflu: 1   Fridgeirsson Dagur Andri ISL 1645 1823   6,5 22,00 0,0 ...

Lesa meira »

Hörð barátta í eldri flokki landsmótsins

Eftir átta umferðir er Hellismaðurinn Helgi Brynjarsson, sonur Brynjars Níelssonar varastjórnarmanns í T.R., efstur í eldri flokki á Landsmótinu í skólaskák með 7. vinninga. Á eftir koma Ingvar Ásbjörnsson og Hörður Aron Hauksson úr Fjölni. Um nánari stöðu, sjá töflu: 1   Brynjarsson Helgi ISL 1755 1853 Reykjavik 7,0 18,00 1956 2   Asbjornsson Ingvar ISL 1910 2016 Reykjavik 6,5 ...

Lesa meira »

Landsmótið í skólaskák

Sterkustu unglingar Taflfélags Reykjavíkur taka ekki þátt í Landsmótinu í skólaskák eldri flokki þetta árið, en eru þeim mun duglegri í yngri flokki. Þar er staðan efstu manna eftirfarandi: 1   Olafsson Einar ISL 1355 0   5,0 12,00 0,0 5 2   Fridgeirsson Dagur Andri ISL 1645 1823   5,0 10,75 0,0 4 3   Stefansson Fridrik Thjalfi ISL ...

Lesa meira »

Óttar Felix endurkjörinn formaður

Óttar Felix Hauksson var endurkjörinn formaður Taflfélags Reykjavíkur á aðalfundi félagsins, sem lauk í kvöld.  Með honum voru sex stjórnarmenn kjörnir: Sigurlaug R. FriðþjófsdóttirJúlíus L. FriðjónssonTorfi LeóssonÓlafur S. ÁsgrímssonSnorri G. BergssonGuðni Stefán Pétursson Í varastjórn voru kjörin: 1. Elín Guðjónsdóttir2. Þorsteinn Þorsteinsson3. Brynjar Níelsson4. Jón Viktor Gunnarsson Endurskoðendur voru kjörnir: Georg Páll Skúlason og Ríkharður Sveinsson. Til vara: Jóhann Örn ...

Lesa meira »

Guðmundur Skákskólameistari 2007

Einvígi Guðmundar Kjartansson og Hjörvars Steins Grétarssonar var að ljúka með sigri Guðmundar. Í fyrri atskákinni vann Hjörvar með hvítt, eftir að hafa unnið peð í miðtaflinu og síðan bætt stöðu sína jafnt og þétt. Í þeirri seinni náði Guðmundur yfirburðastöðu og vann skiptamun. Hann innbyrti síðan sigurinn í tímahrakinu. Í fyrri hraðskákinni var nokkuð jafnræði framan af miðtaflinu, en ...

Lesa meira »

Bráðabani í einvíginu!

Já, skákfréttaritarar taflfélagssíðunnar fyrstir með fréttirnar! Það fór semsagt 1-1 í einvígi þeirra Guðmundar Kjartanssonar og Hjörvars Steins Grétarssonar. Báðir unnu með hvítu mönnunum. Nú tekur við framhald, 2×7 mín og síðan bráðabani með styttri umhugsunartíma. Guðmundur með hvítt í fyrri.

Lesa meira »

Einvígi Guðmundar og Hjörvars byrjað!

Einvígi Guðmundar og Hjörvars um sigurtign meistaramóts Skákskólans er hafið. Skákirnar má sjá beint á síðu Skáksambandsins. Hjörvar hefur hvítt í fyrstu skákinni.

Lesa meira »