Author Archives: Þórir

Skákkeppni vinnustaða 2013

Taflfélag Reykjavíkur býður öllum vinnustöðum að taka þátt í Skákkeppni vinnustaða 2013 sem fram fer í félagsheimili T.R, Skákhöllinni Faxafeni 12, föstudaginn 1. febrúar 2013 og hefst kl. 19.30.   Upplýsingar og keppnisfyrirkomulag: Dagsetning: Föstudagur 1. febrúar kl. 19.30 Staður: Taflfélag Reykjavíkur, Faxafeni 12 (Skeifunni) Sveitakeppni: Þetta er liðakeppni/sveitakeppni og tefla 3 í hverju liði. Vinnustaðirnir geta sent fleira ein ...

Lesa meira »

Davíð Kjartansson Skákmeistari Reykjavíkur 2013

KORNAX mótinu – Skákþingi Reykjavíkur lauk í gærkvöldi þegar spennandi lokaumferð fór fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur.  Fyrir umferðina höfðu Fide meistarinn Davíð Kjartansson og Omar Salama 1,5 vinnings forskot á næstu keppendur en báðir höfðu þeir unnið allar sínar viðureignir utan innbyrðis viðureignarinnar sem lauk með skiptum hlut.  Þeir höfðu því 7,5 vinning eftir að hafa verið í nokkrum ...

Lesa meira »

Friðrik Ólafsson heimsækir T.R. í dag

Í tilefni af afmælisdegi fyrsta stórmeistara Íslendinga og fyrrverandi forseta Fide, Friðriks Ólafssonar, mun hann heimsækja Taflfélag Reykjavíkur í dag og fylgjast með barna- og unglingaæfingu félagsins.  Laugardagsæfingin í dag verður af þessu tilefni sameiginleg fyrir alla T.R. krakkana, þ.e. stúlkurnar, yngri hópinn og afrekshópinn.

Lesa meira »

KORNAX mótið: Bein útsending frá 9. umferð

Níunda og síðasta umferðin í KORNAX mótinu – Skákþingi Reykjavíkur hefst í kvöld kl. 19.30.  Að venju verða sex viðureignir sendar út beint og má fylgjast með þeim hér. Spennan er mikil á toppnum þar sem baráttan um sigur stendur á milli Davíðs Kjartanssonar og Omar Salama en þeir deila saman efsta sætinu með 7,5 vinning, 1,5 vinningi meira en ...

Lesa meira »

Hraðskákmót Reykjavíkur fer fram á sunnudag

Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 sunnudaginn 27. janúar kl. 14. Tefldar verða 2×7 umferðir eftir Sviss Perfect kerfi. Umhugsunartími verður 5 mínútur á skák. Þátttökugjald er kr 500 fyrir 16 ára og eldri en frítt fyrir 15 ára og yngri. Þrenn verðlaun í boði.   Eftir Hraðskákmótið fer fram verðlaunaafhending fyrir  KORNAX mótið 2013 – ...

Lesa meira »

Davíð og Omar í sérflokki á KORNAX mótinu

Áttunda og næstsíðasta umferð Skákþings Reykjavíkur fór fram í gærkvöldi og var nokkuð um óvænt úrslit.  Fide meistarinn Davíð Kjartansson og Omar Salama, sem leiddu fyrir umferðina, unnu báðir sína andstæðinga og eru nú jafnir í efsta sæti með 7,5 vinning, 1,5 vinningi meira en næstu keppendur.  Davíð vann Daða Ómarsson og Omar vann Halldór Pálsson.  Segja má að Davíð ...

Lesa meira »

Davíð og Omar enn efstir á KORNAX mótinu

Mikil spenna er á Skákþingi Reykjavíkur þegar aðeins tvær umferðir lifa af móti.  Í sjöundu umferð, sem fór fram í gærkvöldi, sigruðu Fide meistarinn Davíð Kjartansson og Omar Salama í sínum viðureignum og halda því hálfs vinnings forskoti á næstu menn.  Davíð lagði stórmeistara kvenna, Lenku Ptacnikovu, og Omar vann norðanmanninn reynda, Þór Má Valtýsson.   Davíð og Omar hafa ...

Lesa meira »

Davíð og Omar efstir á KORNAX mótinu

Sjötta umferð fór fram í gærkvöldi og í dag sigraði Davíð Kjartansson Einar Hjalta Jensson í frestaðri viðureign Fide meistaranna úr fimmtu umferð.  Davíð er því efstur ásamt Omari Salama með 5,5 vinning en Omar Sigraði Einar Hjalta í snarpri viðureign.  Önnur helstu úrslit í sjöttu umferð voru þau að stórmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova, sigraði Júlíus L. Friðjónsson og Davíð ...

Lesa meira »

Omar og Júlíus efstir á KORNAX mótinu

Skákþing Reykjavíkur hélt áfram í gærkvöldi þegar fimmta umferð fór fram.  Helstu úrslit voru þau að Omar Salama sigraði alþjóðlega meistarann Sævar Bjarnason, Júlíus L. Friðjónsson hafði betur gegn Halldóri Pálssyni og stórmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova, sigraði Vigfús Ó. Vigfússon.  Þá má nefna að Dagur Ragnarsson sigraði Jóhann H. Ragnarsson og Jón Trausti Harðarson gerði jafntefli við Þór Valtýsson.  Vignir ...

Lesa meira »

Tæplega tuttugu TR-ingar á KORNAX mótinu

Þegar KORNAX mótið – Skákþing Reykjavíkur er tæplega hálfnað er ekki úr vegi að kanna hvernig þátttakendur dreifast á milli skákfélaga.  Það þarf ekki að koma á óvart að Taflfélag Reykjavíkur eigi flesta fulltrúa á mótinu enda stærsta skákfélag landsins.  Þá er einnig gaman að sjá öfluga þátttöku frá Hellismönnum (12) og Fjölnismönnum (11) en öflugt barna-og unglingastarf Fjölnis sést ...

Lesa meira »

KORNAX mótið: Pörun fimmtu umferðar

Óskar Long Einarsson vann í gærkvöldi óvæntan sigur á Haraldi Baldurssyni í frestaðri skák úr fjórðu umferð Skákþings Reykjavíkur og liggur pörun fimmtu umferðar nú fyrir.  Þá mætast á efstu borðum Fide meistararnir Einar Hjalti Jensson og Davíð Kjartansson, Omar Salama og alþjóðlegi meistarinn Sævar Bjarnason, Júlíus L. Friðjónsson og Halldór Pálsson sem og Vigfús Ó. Vigfússon og stórmeistari kvenna, ...

Lesa meira »

Einar Hjalti leiðir á KORNAX mótinu

Fide meistarinn Einar Hjalti Jensson sigraði stórmeistara kvenna, Lenku Ptacnikovu, í fjórðu umferð KORNAX mótsins – Skákþings Reykjavíkur sem fram fór í gærkvöldi.  Á sama tíma gerðu Omar Salama og Fide meistarinn Davíð Kjartansson jafntefli og er Einar því einn efstur með fullt hús vinninga.   Davíð og Omar koma næstir með 3,5 vinning ásamt Halldóri Pálssyni sem sigraði Hilmar ...

Lesa meira »

Vignir Vatnar Íslandsmeistari

Vignir Vatnar Stefánsson varð í gær Íslandsmeistari barna í skák í fyrsta sinn.  Tefldar voru níu umferðir í mótinu, sem fór fram í Rimaskóla, og hlaut Vignir 8 vinninga líkt og Íslandsmeistari síðasta árs, Nansý Davíðsdóttir.  Vignir hafði síðan betur gegn Nansý í afar spennandi einvígi þar sem fimm skákir þurfti til að skera úr um sigurvegara.  Það er ljóst ...

Lesa meira »

Myndir frá jólaskákæfingu T.R.

Í myndaalbúminu hér á vef félagsins má m.a. finna fjölda mynda frá jólaskákæfingunni sem fór fram í desember.  Margt skemmtilegt var gert á æfingunni á má þar nefna tónlistaratriðið og fjölskylduskákmót ásamt ýmsu öðru.  Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir tók saman ítarlegan pistil að lokinni æfingu og sendi til allra þátttakendanna.  Pistillin er birtur hér að neðan örlítið styttur: Jólaskákæfing T.R. – ...

Lesa meira »

Skákkeppni vinnustaða 2013

Taflfélag Reykjavíkur býður öllum vinnustöðum að taka þátt í Skákkeppni vinnustaða 2013 sem fram fer í félagsheimili T.R, Skákhöllinni Faxafeni 12, föstudaginn 1. febrúar 2013 og hefst kl. 19.30.   Upplýsingar og keppnisfyrirkomulag: Dagsetning: Föstudagur 1. febrúar kl. 19.30 Staður: Taflfélag Reykjavíkur, Faxafeni 12 (Skeifunni) Sveitakeppni: Þetta er liðakeppni/sveitakeppni og tefla 3 í hverju liði. Vinnustaðirnir geta sent fleira ein ...

Lesa meira »