Author Archives: Þórir

Sævar Öðlingameistari

Alþjóðlegi meistarinn Sævar Bjarnason er Skákmeistari öðlinga 2014 en hann tryggði sér titilinn með sigri á Sigurlaugu R. Friðþjófsdóttur í lokaumferð Skákmóts öðlinga sem fram fór á miðvikudagskvöld. Er þetta í fyrsta sinn sem Sævar ber þennan sæmdartitil. Mótið var afar jafnt og spennandi og þurfti tvöfaldan stigaútreikning til að kveða upp úr um sigurvegara mótsins því Ögmundur Kristinsson kom jafn Sævari ...

Lesa meira »

Hjörvar á sigurbraut á WOW air mótinu

Það virðist fátt geta komið í veg fyrir sigur stórmeistarans Hjörvars Steins Grétarssonar á WOW air móti Taflfélags Reykjavíkur en hann hefur nú 1,5 vinnings forskot þegar tveimur umferðum er ólokið.  Í fimmtu umferð, sem fór fram í gær, sigraði Hjörvar alþjóðlega meistarann Dag Arngrímsson í 27 leikjum og var lokahnykkurinn sérlega glæsilegur.  Hjörvar hefur fullt hús vinninga en næstur ...

Lesa meira »

Vorhátíðarskákæfing TR fór fram sl. laugardag

Barna-og unglingastarf TR er nú komið í sumarfrí eftir viðburðarríkan, skemmtilegan og árangursríkan vetur. Vorhátíðarskákæfing var haldin í öllum skákhópunum í gær laugardaginn 3. maí. Alls hafa hátt á annað hundrað barna tekið þátt í skákæfingum TR í vetur og þær verið mjög vel sóttar.   Um morguninn fór fram vorhátíðaræfing í stelpuhópnum kl. 12.30-13.45. Þar mættu 14 hressar skákstelpur, ...

Lesa meira »

Öðlingamótið: Ögmundur efstur fyrir lokaumferðina

Ögmundur Kristinsson er efstur með 5,5 vinning þegar einn umferð lifir af Skákmóti öðlinga.  Alþjóðlegi meistarinn Sævar Bjarnason er annar með 5 vinninga en Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir og Þorvarður F. Ólafsson koma næst með 4,5 vinning hvor.  Í sjöttu og næstsíðustu umferð sem fór fram á miðvikudagskvöld sigraði Ögmundur Vigfús Vigfússon, Sævar lagði Vigni Bjarnason, Þorvarður vann Magnús Kristinsson og ...

Lesa meira »

Myndir frá páskaæfingu stelpna

Stelpuskákæfingar Taflfélags Reykjavíkur hafa verið vel sóttar í vetur og ánægjulegt hefur verið að sjá hversu áhugasamar og duglegar stelpurnar hafa verið að iðka skáklistina.  Hér má sjá myndir frá skemmtilegri páskaæfingu hjá þeim í nýliðnum apríl mánuði.

Lesa meira »

Hjörvar Steinn með vinningsforskot á WOW air mótinu

Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson sigraði kollega sinn, Hannes Hlífar Stefánsson, í fjórðu umferð Wow air mótsins – Vormóts Taflfélags Reykjavíkur sem fram fór á mánudagskvöld.  Hjörvar leiðir því mótið enn með fullt hús vinninga en annar er alþjóðlegi meistarinn Dagur Arngrímsson sem hafði betur gegn Fide meistaranum Ingvari Þór Jóhannessyni.  Sjö keppendur koma næstir með 2,5 vinning, þar á meðal ...

Lesa meira »

Stemming á öðru skemmtikvöldi T.R.

Það var mikil stemming á öðru skemmtikvöldi Taflfélags Reykjavíkur sem fram fór á föstudagskvöldið.  Níu sterk lið voru mætt til leiks í “Heili og hönd” þar sem tefldar voru Fischer Random stöður.  Reglulega var gert hlé á taflmennskunni til að hlaða batteríin og heimsækja nágranna okkar á Billiardbarnum. Taflmennskan var oft á tíðum mjög skrautleg líkt og á Íslandsmeistaramótinu í ...

Lesa meira »

Fischer Random heili og hönd: Upphafsstöður 1.-4. umferðar

Í kvöld fer fram annað skemmtikvöld Taflfélags Reykjavíkur en hið fyrsta fór fram í mars mánuði við góðar undirtektir.  Þá var haldið fyrsta Íslandsmótið í Fischer Random sem alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartannsson sigraði örugglega í.  Í kvöld verður áframhald á Fischer Random taflmennsku en að þessu sinni með fyrirkomulaginu Heili og hönd.  Upphafsstöður fyrstu fjögurra umferðanna liggja nú fyrir, eilítið ...

Lesa meira »

Ögmundur efstur á Öðlingamótinu

Ögmundur Kristinsson er efstur með 4,5 vinning á Skákmóti öðlinga eftir sigur á Sigurlaugu R. Friðþjófsdóttur í fimmtu umferð sem fram fór í gærkvöldi.  Alþjóðlegi meistarinn Sævar Bjarnason og Vigfús Vigfússon koma næstir með 4 vinninga en Sævar gerði jafntefli við núverandi Öðlingameistara, Þorvarð F. Ólafsson, á meðan að Vigfús hafði betur gegn Ólafi Gísla Jónssyni.  Sigurlaug og Þorvarður eru ...

Lesa meira »

Skemmtikvöld TR á föstudag: Heili og hönd í Fisher Random

Nú er komið að öðru skemmtikvöldi Taflfélags Reykjavíkur sem haldið er í samstarfi við Billiardbarinn. Eftir stórskemmtilegt fyrsta skemmtikvöld félagsins þar sem Guðmundur Kjartansson tryggði sér fyrsta Íslandsmeistaratitillinn í Fischer Random þá verður nú keppt í Heili og hönd í Fischer Random! Umferðafjöldi (swiss eða round robin) fer eftir þátttöku og tefldar verðar skákir með 5 mínútna umhugsunartíma. Tvö hlé ...

Lesa meira »

Hjörvar Steinn efstur á Wow air mótinu

Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson sigraði Dag Ragnarsson í þriðju umferð Wow air mótsins-Vormóts Taflfélags Reykjavíkur sem fram fór í gær.  Hjörvar er efstur með fullt hús vinninga en næstir með 2,5 vinning eru stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson sem lagði kollega sinn, Stefán Kristjánsson, og Fide meistarinn Ingvar Þór Jóhannesson sem knésetti Fide meistarann Guðmund Gíslason.  Fjórir skákmenn fylgja á eftir ...

Lesa meira »

Fjölmennri Páskaeggjasyrpu lokið

Það var glatt á hjalla í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur í dag þegar lokamót Páskaeggjasyrpu félagsins og Nóa Síríus fór fram.  Líkt og í fyrri mótunum tveimur tók á áttunda tug krakka þátt í mótinu en flestir af efnilegustu skákkrökkum þjóðarinnar voru á meðal þátttakenda í syrpunni sem samanstóð af þremur mótum sem haldin voru síðustu þrjá sunnudagana fyrir páska. Í ...

Lesa meira »

Lokamótið í Páskaeggjasyrpu Nóa Síríus og TR

Nú styttist í þriðja og síðasta mótið í Páskaeggjasyrpu Taflfélags Reykjavíkur og Nóa Síríus en tæplega 80 krakkar tóku þátt í hvoru af fyrstu tveimur mótunum.  Mótið fer fram á sunnudag og hefst kl. 14 og eru allir þeir sem skráðu sig upphaflega hvattir til að mæta aftur.  Þeir sem ekki skráðu sig en vilja taka þátt geta skráð sig ...

Lesa meira »

Sigurlaug á flugi í Öðlingamótinu

Þegar fjórum umferðum af sjö er lokið á Skákmóti öðlinga eru Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir, Ögmundur Kristinsson og alþjóðlegi meistarinn Sævar Bjarnason efst og jöfn með 3,5 vinning hver.  Í fjórðu umferð, sem fór fram í gærkvöldi, gerðu Sævar og Ögmundur jafntefli í innbyrðis viðureign en Sigurlaug vann Sigurð Kristjánsson og heldur þar með áfram góðu gengi eftir sigurinn á núverandi ...

Lesa meira »

Mikið fjör í 2. umferð Wow air mótsins

Það vantaði ekki dramatíkina þegar önnur umferð Wow air mótsins fór fram í gærkvöldi í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur.  Á efsta borði tefldi Fide meistarinn, Ingvar Þór Jóhannesson, feykilega vel gegn stórmeistaranum og margföldum Íslandsmeistara, Hannesi Hlífari Stefánssyni, sem mátti þakka fyrir að ná jafntefli en Ingvar var með unna stöðu lengi vel peði yfir í hróksendatafli. Þá sigraði Dagur Ragnarsson ...

Lesa meira »

Gauti og Óskar sigruðu á öðru Páskaeggjamótinu

Annað mótið í Páskaeggjasyrpu Taflfélags Reykjavíkur og Nóa Síríus fór fram í dag og líkt og í fyrsta mótinu tók á áttunda tug krakka þátt, 45 í yngri (2005-2008) flokki og 29 í eldri (1998-2004) flokki.  Í yngri flokknum sigraði Óskar Víkingur Davíðsson glæsilega með fullu húsi vinninga eða 6 vinninga af 6 mögulegum en jafnir í 2.-4. sæti með ...

Lesa meira »

Annað mótið í Páskaeggjasyrpu Nóa Síríus og TR

Nú styttist í annað mótið af þremur í Páskaeggjasyrpu Taflfélags Reykjavíkur og Nóa Síríus en tæplega 80 krakkar tóku þátt í fyrsta mótinu.  Mótið fer fram á sunnudag og hefst kl. 14 og eru allir þeir sem skráðu sig í mótið hvattir til að mæta aftur.  Þeir sem ekki skráðu sig en vilja taka þátt geta skráð sig á staðnum ...

Lesa meira »

Þrír leiða á Skákmóti öðlinga

Ekki var mikið um óvænt úrslit þegar þriðja umferð Skákmóts öðlinga fór fram í gærkvöldi.  Á efsta borði sigraði alþjóðlegi meistarinn, Sævar Bjarnason, Siguringa Sigurjónsson.  Sævar er efstur með fullt hús vinninga ásamt Ögmundi Kristinssyni sem lagði Sigurjón Haraldsson og Sigurði Kristjánssyni sem vann Árna H. Kristjánsson.  Næst með 2,5 vinning koma Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir og Vignir Bjarnson. Í fjórðu ...

Lesa meira »