Author Archives: Gauti Páll Jónsson

Dagskrá skákæfingar fullorðinna – Vor 2022

tr

Æfingar fyrir 16 ára og eldra halda áfram, og hefjast mánudaginn 17. janúar. Haldnir eru hálfsmánaðarlegir fyrirlestrar í hvorkum flokki. Annars vegar í flokki I annan hvern mánudag fyrir skákmenn á styrkleikanum ca. 1000-1600 elo-stig og hins vegar annan hvern fimmtudag í flokki II, hentugir fyrir skákmenn yfir 1600 stigum. Eftir um klukkutíma fyrirlestur er sett upp lítið hraðskákmót. Æfingarnar ...

Lesa meira »

Stefán Bergsson Páskameistari TR 2022!

paskamot2022

Stefán Bergsson vann virkilega sannfærandi sigur á hinu fyrsta Páskaeggjamóti TR sem haldið var laugardaginn fyrir páska. 10 vinningar af 11 mögulegum, en tefldar voru hraðskákir með tímamörkunum 3+2. 20 skákmenn mættu til leiks, talsvert færri en oft áður á hraðskákmótum, en eins og gengur eru margir á faraldsfæti um páskana. Jafnir í 2.-3. sæti með 7.5 vinning urðu þeir ...

Lesa meira »

Páskahraðskákmót TR fer fram á morgun!

paskaegg

Nýtt mót á dagskrá, Páskahraðskákmót TR! Páskahraðskákmót TR fer fram laugardaginn 16. apríl klukkan 13:00. Tefldar verða 11. umferðir með tímamörkunum 3+2. Mótið verður reiknað til hraðskákstiga. Þáttökugjöld: 1000 krónur, 500 krónur fyrir 17 ára og yngri og ókeypis fyrir 17 ára og yngri í TR og alla alþjóðlega- og stórmeistara. Skráning fer fram á netinu, en hægt er að skrá sig í ...

Lesa meira »

TR á Íslandsmóti Skákfélaga 2021-2022!

tra

Pistill TR á Íslandsmóti Skákfélaga vorið 2022! Úrvalsdeild TR var í toppbaráttunni fyrir seinni hlutann en margir höfðu þó spáð Garðbæingum sigri, með sterku blölduðu liði Íslendinga, og sænskra skákmanna í yngri kantinum. Það var samt margt sem átti eftir að breytast þegar kom að seinni hlutanum. Garðbæingar bættu við sig einum sterkum skákmanni, Víkingar mættu mun þéttari til leiks ...

Lesa meira »

Justin Sarkar með fullt hús á Þriðjudagsmóti

thridjudags_12.4.22

Bandaríski alþjóðlegi meistarinn Justin Sarkar vann sannfærandi sigur með fullu húsi á Þriðjudagsmótinu 12. apríl síðastliðinn. Fyr um daginn hafði galopna Reykjavíkurskákmótið klárast og fáeinir skákþyrstir kappar mættu til leiks nánast beint eftir lokahófið: Justin Sarkar, Vitaliy Garbuz, Raphael Kracht og Max Peter Bartetlt, en þeir þrír síðastnefndu eru þýskir skákmenn um tvítugt. Í bland við erlendu gestina tóku þátt ...

Lesa meira »

Öruggir Reykjavíkurmeistarar í móti með jöfnu kynjahlutfalli

unglrvk22_22

Kynjahlutföll voru jöfn í fyrsta sinn á Barna- og Unglingameistaramóti Reykjavíkur, sem og Stúlknameistaramóti Reykjavíkur og fer mótið í sögubækurnar fyrir vikið, en 15 tóku þátt í hvoru móti, sem fram fór í dag í skákhöll Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni. Krakkar á öllum aldri háðu orrustu á reitunum 64 og voru sérstaklega áberandi hópar krakka úr Taflfélagi Reykjavíkur og úr Skákdeild ...

Lesa meira »

Arnar Ingi efstur á Þriðjudagsmóti!

arnaringi

  Arnar Ingi Njarðarson kom sá og sigraði á Þriðjudagsmótinu 29. mars. En tæpt var það! Eftir mikinn hörkusigur í lokaumferðinni gegn Hjálmari Sigurvaldasyni þurfti hann að treysta á góð úrslit fyrir sig á borðunum í kring, og það gekk eftir. Jafntefli milli efstu manna á borðum eitt og tvö: Annars vegar í skák Ingvars Wu og Kristófers Orra, og ...

Lesa meira »

Friðrik Ólafsson með fyrirlestur á fimmtudag!

fridrikolafsson

Opið hús í TR, Faxafeni 12, fimmtudagskvöldið 31. mars klukkan 19:30. Þá heldur Friðrik Ólafsson fyrirlestur sinn á skákæfingum fullorðinna sem haldnar hafa verið frá því síðasta haust. Fyrirlestur Friðriks verður þó öllum opinn. Streymt verður frá fyrirlestrinum þannig að þeir sem komast ekki geta fylgst með á netinu. Hlekkur á streymið verður settur hér í fréttina, bæði á skak.is ...

Lesa meira »

Barna- og unglingameistaramót Reykjavíkur fer fram 3. apríl!

barnaungl

Barna- og unglingameistaramót Reykjavíkur fer fram 3. apríl. Barna- og unglingameistaramót Reykjavíkur, sem jafnframt er Stúlknameistaramót Reykjavíkur, fer fram sunnudaginn 3. apríl í skákhöll T.R. að Faxafeni 12. Taflið hefst kl.13 og stendur til kl.17 c.a. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10m+5s). Þátttaka er ókeypis. Mótið verður reiknað ...

Lesa meira »

Reykjavíkurmót grunnskólasveita fer fram 4.-5. apríl

Reykjavíkurmót-grunnskóla-2017-1024x376

Reykjavíkurmót grunnskólasveita hefst í húsnæði TR að Faxafeni 12 mánudaginn 4. apríl kl. 16.30 með keppni 1.-3. bekkjar. Mótið er sem fyrr samstarfsverkefni Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur. Mótinu verður skipt í þrennt að þessu sinni; 1.-3. bekkur, 4.-7. bekkur og 8.-10. bekkur. Keppni 4.-7. bekkjar og 8.-10. bekkjar fer fram daginn eftir, þriðjudaginn 5. apríl. Tefldar verða ...

Lesa meira »

Bikarsyrpa IV (25-27. mars 2022)

BikarsyrpanBanner_generic

Helgina 25-27. mars fer fram næsta mót í Bikarsyrpuröð Taflfélags Reykjavíkur. Þetta er fjórða mótið af fimm sem haldið er á tímabilinu 2021-22. Tefldar verða 7 kappskákir yfir þessa þrjá daga. Fer mótið fram í Taflfélagi Reykjavíkur, Faxfeni 12. Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst að tefla í kappskákmótum, en hingað til hefur þeim börnum sem vilja tefla ...

Lesa meira »

Ólafur B. Þórsson efstur á Þriðjudagsmóti – 30 þáttakendur

olafurb

Mettþáttaka var á Þriðjudagsmóti TR þann 15. mars, en 30 manns mættu til leiks. Toppurinn var þéttur, en fyrir lokaumferðina voru átta skákmenn með þrjá vinninga og tveir skákmenn með tvo vinninga, þeir Daði Ómarsson og Ólafur B. Þórsson. Ólafur vann þá skák og tryggði sér því fyrsta sætið. Fimm skákmenn hlutu fjóra vinninga, Daði, Björgvin Ívarsson Schram, Gauti Páll ...

Lesa meira »

Gauti Páll með fullt hús á fjölmennu Þriðjudagsmóti

Jolaaef_2009-28

25 manns mættu á Þriðjudagsmótið þann 8. mars. Eftir fimm umferðir var það mótshaldarinn sjálfur einn efstur með fullt hús eins og hendir stundum. Tveir skákmenn fengu fjóra vinninga af fimm, Daði Ómarsson og Grímur Daníelsson. Ótrúlegt en satt þá tefldi Gauti Páll við hvorugan þeirra! Gauti Páll lenti hins vegar í því tvisvar sinnum að stýra hvítu mönnunum gegn ...

Lesa meira »

Taflfélag Reykjavíkur Íslandsmeistarar Skákfélaga 2022!

tra

TR varð um helgina Íslandsmeistar Skákfélaga 2021-2022 með sögulegum sigri í hinni nýstofnuðu úrvalsdeild! Glæsilegur og verðskuldaður árangur! Nánari skil verða gerð mótinu í Tímaritinu Skák sem kemur út í apríl, og pistill um árangur einstakra TR liða og félagsmanna verður birtur hér á heimasíðunni á næstu dögum. TR sendi sjö lið til leiks, langflest allra félaga. B liðið heldur sínu sæti ...

Lesa meira »

Þriðjudagsmót í kvöld fellur niður

rvkmotgrsksv-620x330

Þriðjudagsmót sem hefði átt að vera í kvöld, 1. mars, fellur niður vegna undirbúnings TR fyrir Íslandsmót skákfélaga sem verður næstkomandi helgi. Næsta Þriðjudagsmót verður því 8. mars, klukkan 19:30 stundvíslega í félagsheimili TR, Faxafeni 12. Telfdar eru fimm umferðir með tímamörkunum 10 mín og 5 sekúndna viðbót fyrir hvern leik. Mótinu lýkur yfirleitt um eða upp úr 22:00.

Lesa meira »

Öðlingamótið hefst á morgun, Yrðlingamóti aflýst

rvkmotgrsksv-620x330

Skákmót öðlinga 40 ára og eldri (fædd 1982 og fyr) hefst miðvikudaginn 2. mars kl. 18.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina auk 30 sekúndna viðbótartíma á hvern leik. Núverandi Skákmeistari öðlinga er Róbert Lagerman.   Dagskrá  1. umferð miðvikudag 2. mars kl. 18.30 2. umferð miðvikudag 9.  mars kl. ...

Lesa meira »

Hraðskákmót Reykjavíkur verður 23. febrúar!

rvkmotgrsksv-620x330

Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 miðvikudaginn 23. febrúar og hefst taflið kl.18:30. Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 3+2 (3 mínútur auk 2 sekúndna viðbótartíma eftir hvern leik). Mótið verður reiknað til hraðskákstiga og er opið öllum. Þátttökugjald er 1.000kr. Frítt er í mótið fyrir félagsmenn TR sem eru 17 ára eða yngri. Skráning fer fram á ...

Lesa meira »

Kristófer Orri með fullt hús á Þriðjudagsmóti!

thridjudagsmot8.2.22

Einn af nýliðunum í íslenskri skákseni, hinn ungi Kristófer Orri Guðmundsson, gerði sér lítið fyrir og vann Þriðjudagsmótið þann 8. febrúar. Féllu margir sterkir skákmenn í valinn, þar á meðal stórmeistarabaninn og mótshaldarinn Gauti Páll! Kristófer er grjótharður skákmaður en byrjaði ekki að tefla yfir borðinu fyrr en í desember. Sex af tólf þáttekendum kvöldsins stigalausir! TR fagnar nýliðunum á ...

Lesa meira »

Skákþing Reykjavíkur hefst á miðvikudag! NÝTT SKRÁNINGARFORM

sþr

Skákþing Reykjavíkur hefst miðvikudaginn 2. febrúar kl. 18.30. Tefldar verða níu umferðir eftir svissnesku kerfi. Teflt er í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12. Keppendur geta tekið tvær yfirsetur (bye) í umferðum 1-6. Leggja skal inn ósk um yfirsetu til skákstjóra við upphaf umferðarinnar á undan. Ef taka á yfirsetu í 1. umferð skal merkja við það á neðangreindu skráningarformi. Hálfur vinningur fæst fyrir yfirsetu. Ekki ...

Lesa meira »