Annar sigur Guðmundar í röð



Alþjóðlegi meistarinn, Guðmundur Kjartansson (2413), sigraði Fide meistarann, Davíð Ólafsson  (2327), í áttundu umferð landsliðsflokks Skákþings Íslands sem fram fór í dag.  Guðmundur hafði svart og fékk nokkuð góða stöðu út úr byrjuninni.  Í 27. leik fórnaði Davíð riddara fyrir kóngssókn sem aldrei náði flugi og gafst Davíð upp eftir 45 leiki.

Guðmundur er í 7.-8. sæti með 3,5 vinning en efstur með 7 vinninga og tveggja vinninga forskot er stórmeistarinn, Henrik Danielsen (2473).

Níunda umferð fer fram á morgun og hefst kl. 16 en þá mætir Guðmundur alþjóðlega meistaranum, Braga Þorfinnssyni (2360).

  • Heimasíða SÍ
  • Chess-Results
  • Skákirnar í beinni