Æskan og Ellin fer fram 22.október



Skákmótið ÆSKAN OG ELLIN, þar sem kynslóðirnar mætast, verður haldið í 13. sinn laugardaginn 22. október í Skákhöllinni í Faxafeni.

Jón Steinn - forstjóri Toppfisks -eseTAFLFÉLAG REYKJAVÍKUR og RIDDARINN, skákklúbbur eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu, með stuðningi TOPPFISKS ehf – leiðandi fyrirtækis í ferskum og frystum sjávarafurðum – standa saman að mótshaldinu sem hefur eflst mjög að öllu umfangi og vinsældum undanfarin ár.

Fyrstu 9 árin var mótið haldið í Strandbergi, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju, þar sem Riddarinn hefur aðsetur sitt og eldri skákmenn hittast til tafls vikulega allan ársins hring, en nú síðustu 3 árin í samstarfi við Taflfélag Reykjavíkur- elsta taflfélag landins. Þessi mót – þar sem kynslóðirnar mætast – hafa jafnan verið fjölsótt jafnt af yngri sem eldri skákmönnum og velheppnuð. Yfir 80 ára aldursmunur hefur iðulega verið milli yngsta og elsta keppandans.

ÆSKAN OG ELLIN 2016 borðspjald

Þátttaka í mótinu er ókeypis og miðast við börn og ungmenni á grunnskólaaldri, 15 ára og yngri, og roskna skákmenn, 60 ára og eldri. Mótið hefst kl.13 og verða tefldar 9 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma.

Vegleg verðlaun og viðurkenningar. Auk aðalverðlauna verða veitt aldursflokkaverðlaun í 3 flokkum ungmenna og öldunga.  Annars vegar fyrir þrjú efstu sæti í barna- og unglingaflokkum, 9 ára og yngri; 10-12 ára og 13-15 ára og hins vegar fyrir efstu menn í 3 öldungaflokkum, 60-69 ára; 70-79 ára og 80 ára og eldri. Auk þess fær sú telpa sem bestum árangri nær og yngsti og elsti keppandi mótsins heiðursverðlaun

Mótsnefnd skipa þeir Kjartan Maack, formaður TR, og Einar S. Einarsson, formaður Riddarans. Skákstjóri verður Páll Sigurðsson, alþjóðlegur skákdómari.

Skráning til þátttöku fer fram á www.skak.is og www.taflfelag.is vikuna fyrir mót. Hámarksfjöldi keppenda miðast við 100 og því mikilvægt að skrá sig sem fyrst og/eða mæta tímanlega á mótsstað.