Æskan og Ellin: Bragi sigraði…aftur



Bragi Halldórsson stóð uppi sem sigurvegari á Stórmótinu Æskan og Ellin sem fór fram í gær.  Þetta er annað árið í röð sem Bragi sigrar og í þriðja sinn á fjórum árum svo hann finnur sig svo sannarlega vel á þessu flotta móti.  Bragi hlaut 7,5 vinning og varð jafn Guðfinni R. Kjartanssyni að vinningum en ofar á stigum.  Jafnir í 3.-5. sæti með 7 vinninga komu alþjóðlegi meistarinn Sævar Bjarnason, Jóhann Örn Sigurjónsson og Vignir Vatnar Stefánsson.  Nánari umfjöllun er væntanleg.

  • Heildarrúrslit