Actavis sigraði í Skákkeppni vinnustaða



Skákkeppni vinnustaða fór fram í Skákhöll Taflfélags Reykjavíkur síðastliðið miðvikudagskvöld. Keppnin var hörð en toppbaráttan stóð fyrst og fremst á milli liða frá Actavis og Skákakademíunni sem mættust í úrslitaviðureign í lokaumferðinni. Fyrir viðureignina leiddi Skákakademían með hálfum vinningi og því þurfti lið Actavis að leggja allt í sölurnar. Svo fór að Actavis vann 2,5-0,5 sigur þar sem Björn Ívar Karlsson og Sigurbjörn Björnsson gerðu jafntefli. Með sigrinum tryggði lið Actavis sér því sigurinn í mótinu með 18,5 vinning en lið Skákakademíunnar kom næst með 17 vinninga. Lið Myllunnar hafnaði í þriðja sæti með 13 vinninga, hálfum vinningi meira en Landsbankinn sem kom næstur.

 

Sjö lið mættu til leiks og gekk mótahald vel með drengilegri baráttu. Taflfélag Reykjavíkur vill koma á framfæri þökkum til þeirra fyrirtækja sem sendu lið til leiks og vonast svo sannarlega til að sjá þau aftur að ári.

Lokastaðan

1 Actavis 1, 18,5v
2 Skákakademían, 17,0
3 Myllan, 13,0
4 Landsbankinn, 12,5
5 HR Tölvunarfræðideild, 11,0
6.-7. Actavis 2, 6,0
CCP, 6,0

Gullsveit Actavis: Sigurbjörn Björnsson, Sigurður Daði Sigfússon, Davíð Ólafsson

Silfursveit Skákakademíunnar: Björn Ívar Karlsson, Stefán Bergsson, Siguringi Sigurjónsson

Bronssveit Myllunnar: Þorvarður F. Ólafsson, Einar Valdimarsson, John Ontiveros

  • Myndir