miđvikudagur 19. jún 06 2013
Póstlistaskráning
Póstlistaskráning
Skráđu netfangiđ ţitt og fáđu tilkynningar sendar í tölvupósti
Nafn
Afskrá
Dagatal
Júni - 2013
S M Ţ M F F L
26 27 28 29 30 31 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 1 2 3 4 5 6
<
>

Taflfélag Reykjavíkur er elsta, virtasta og eitt af öflugustu skákfélögum landsins. Félagið er margfaldur Íslandsmeistari skákfélaga. Aðsetur félagsins er að Faxafeni 12.


Þar er skák stunduð af miklum móð, skákmót haldin, æfingar fyrir unglinga og margt, margt fleira.

Barna- og unglingaæfingar á laugardögum:


Laugardagsæfingarnar


 

Vefsíða Taflfélags Reykjavíkur er keyrð á vefumsjónarkerfi Allra Átta ehf.

 

 

 

 

 

Samþykktar á stjórnarfundi T.R., júní 2007.

Styrkjareglur Taflfélags Reykjavíkur

 

  1. flokkur: Virkir stórmeistarar og skákmenn yfir 2.500 skákstig
  2. flokkur: Virkir alþjóðlegir meistarar og skákmenn yfir 2400 skákstig.
  3. flokkur: Virkir FIDE-meistarar og skákmenn yfir 2300 skákstig.

 

 

Skyldur T.R.

 

 

  1. flokkur: Taflfélag Reykjavíkur áskilur 1. flokks mönnum rétt til að sækja um og hljóta 200.000 kr. í styrk á ári til keppnisferða erlendis. Hver styrkur getur ekki orðið hærri en 66.666. kr., nema í undantekningartilfellum, sem stjórn T.R. ákveður.
  2. flokkur: Taflfélag Reykjavíkur áskilur 2. flokks mönnum rétt til að sækja um og hljóta 150.000 kr. í styrk á ári til keppnisferða erlendis. Hver styrkur getur ekki orðið hærri en 50.000 kr., nema í undantekningartilfellum, sem stjórn T.R. ákveður.
  3. flokkur: Taflfélag Reykjavíkur áskilur 3. flokks mönnum rétt til að sækja um og hljóta 100.000 kr. í styrk á ári til keppnisferða erlendis. Hver styrkur getur ekki orðið hærri en 50.000 kr., nema í undantekningartilfellum, sem stjórn T.R. ákveður.

 

Skyldur styrkþega:

 

  1. Styrkþegar skulu tefla a.m.k. sex skákir í Íslandsmóti skákfélaga á hverju keppnistímabili, nema sérstakar ástæður komi upp, s.s. veikindi. Stjórn T.R. mun meta uppgefnar ástæður, reynist svo þörf.
  2. Styrkþegar skulu tefla að jafnaði í öðrum keppnum, sem félagið tekur þátt í, s.s. Hraðskákkeppni taflfélaga, Bikarmóti T.G. og öðrum slíkum keppnum.
  3. Styrkþegar skulu taka að sér stundakennslu unglinga í Skákskóla T.R. sé þess óskað. Miðað er við, að sú kennsla verði þó aðeins minni háttar, t.d. 2-3 skipti á hvoru misseri, auk séraðstoðar, ef þurfa þykir, þegar unglingar félagsins taka í mikilvægri keppni eða sveitakeppni, heima eða erlendis.
  4. Á mótum erlendis skulu styrkþegar senda heim fréttir af gangi máli fljótlega eftir að skák lýkur, sé þess kostur, til birtingar á fréttasíðu Taflfélagsins á www.taflfelag.is.

 Þeir sem þiggja styrki frá T.R. gangast undir þau skilyrði sem sett eru.